Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur í dag leik á SEC Championship mótinu ásamt liði sínu úr LSU háskólanum. Mótið fer fram á Sea Island Golf Club vellinum í Georgíu dagana 22.-26. apríl og markar upphafið á lokahluta tímabilsins hjá Gunnlaugi.
Sea Island völlurinn hefur hýst SEC Championship mótið frá árinu 2001 og lék Gunnlaugur völlinn því einnig á sama tíma í fyrra. Þar lék hann hringina þrjá á tveimur höggum undir pari, en lið hans í LSU endaði í öðru sæti höggleiksins. Völlurinn er par 70, rúmlega 6.400 metrar að lengd og er heimavöllur RSM Classic mótsins á PGA mótaröðinni.

Mótið er tvískipt, en fyrstu þrjá keppnisdagana er leikinn höggleikur. Veitt eru verðlaun fyrir besta skor einstaklings, en fjögur bestu skor liðsins af fimm telja á hverjum hring. Að höggleiknum loknum komast efstu átta liðin áfram í útsláttarkeppni þar sem leikið er til úrslita í SEC-deildinni.
SEC-deildin er talin sú sterkasta í bandaríska háskólagolfinu og eru tíu af sautján bestu háskólaliðum landsins skráð til leiks í mótið. LSU lið Gunnlaugs er það áttunda sterkasta í Bandaríkjunum sem stendur, en margt getur breyst með góðri frammistöðu á næstu dögum.
Gunnlaugur Árni hefur verið lykilmaður LSU liðsins á tímabilinu. Hann er með 69.52 högg að meðaltali á hring, sem er það lægsta í liðinu, og hefur þegar unnið mót á keppnistímabilinu. Gunnlaugur hefur leik kl. 13:00 að íslenskum tíma á tíundu holu vallarins, en hægt er að fylgjast með skori mótsins hér.
