GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Golfiðkun erlendra gesta á Íslandi heldur áfram að aukast verulega. Samkvæmt nýrri samantekt Golf Iceland var heildaraukningin hjá þeim golfklúbbum sem halda reglulega utan um slíkar tölur rúmlega 19 prósent til loka ágúst, miðað við sama tímabil í fyrra.

Jafnframt er um að ræða mesta heildarfjölda erlendra gesta til loka ágúst frá því að viðkomandi golfklúbbar hófu talningar.

Aukningin er misjöfn eftir klúbbum, bæði þegar horft er til fjölda gesta og hlutfallslegrar breytingar milli ára. Ýmsir þættir geta haft áhrif á þróunina, þar á meðal veðurfar á einstökum landsvæðum og framboð á rástímum. Takmarkað framboð hjá sumum klúbbum getur þannig leitt til þess að aukningin færist að hluta yfir á aðra golfvelli.

Hjá einum þeirra valla sem tóku þátt í samantektinni var sérstaklega mikil aukning í ágúst.

„Algjör sprenging var hjá okkur í ágúst miðað við undanfarin ár. Auk fjölgunar einstaklinga fengum við tvo stóra hópa og tvo hópa frá skemmtiferðaskipum,“ segir í upplýsingum frá vellinum.

Tölurnar gefa skýra vísbendingu um áframhaldandi vöxt í golfferðamennsku á Íslandi. Þær ná þó aðeins til þeirra klúbba sem hafa haldið sambærilegar talningar yfir lengri tíma og gefa því ekki endanlega heildarmynd af fjölda golfhringja erlendra gesta á landsvísu.

Í lok árs munu einnig liggja fyrir niðurstöður úr könnunum Ferðamálastofu þar sem erlendir ferðamenn eru meðal annars spurðir um kaup á afþreyingu, þar á meðal golfi. Með því að bera þær niðurstöður saman við talningar golfklúbbanna verður hægt að áætla með meiri nákvæmni heildarfjölda golfhringja erlendra gesta á Íslandi árið 2026.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ