GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Í dag, 8. september, er Alþjóðlegur þakkardagur vallarstarfsfólks. Dagurinn er tileinkaður vallarstjórum og öðru vallarstarfsfólki sem vinnur mikilvægt starf á golfvöllum um allan heim.

Vallarstarfsfólk leggur grunninn að góðri upplifun kylfinga og heldur okkar flottu golfvöllum í frábæru standi. Á Íslandi getur starfið verið sérstaklega krefjandi vegna stutts sumars og síbreytilegs veðurfars. Vinnan hefst oft snemma morguns, löngu áður en fyrstu kylfingar dagsins mæta á völlinn.

Dagurinn er nú haldinn í sjötta sinn. Kylfingar og golfklúbbar eru hvattir til að þakka vallarstarfsfólki fyrir þeirra mikilvæga framlag, annaðhvort í persónu eða á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #ThankAGreenkeeper.

Golfsamband Íslands færir öllu vallarstarfsfólki golfklúbba landsins bestu þakkir fyrir þeirra ómetanlega starf í þágu golfs á Íslandi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ