GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Átta íslenskir kylfingar hefja leik þriðjudaginn 8. september á fyrsta stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour. Mótið fer fram á Golf-und Country Club Seddiner See í Michendorf í Þýskalandi og stendur yfir í fjóra daga.

Íslensku kylfingarnir sem eru á meðal keppenda eru:

  • Aron Snær Júlíusson
  • Dagbjartur Sigurbrandsson
  • Hlynur Bergsson
  • Logi Sigurðsson
  • Ragnar Garðarsson
  • Sigurður Arnar Garðarsson
  • Jóhann Frank Halldórsson
  • Tómas Eiríksson Hjaltested

Alls eru 84 kylfingar frá 27 þjóðum skráðir til leiks. Átta manna hópur Íslands er því einn sá fjölmennasti í mótinu, en aðeins Bandaríkin eiga fleiri keppendur. Á meðal þekktra kylfinga í mótinu eru Bandaríkjamaðurinn Michael La Sasso og Japaninn Yosuke Asaji, sem léku báðir á LIV-mótaröðinni á árinu.

Fjögurra daga höggleikur

Leiknar verða 72 holur í höggleik dagana 8.-11. september. Fjöldi þeirra sem kemst áfram á næsta stig er ákveðinn fyrir hvert mót út frá stærð þátttakendahópsins og komast kylfingar sem eru jafnir í síðasta örugga sætinu einnig áfram.

Mótið í Þýskalandi er eitt af tíu mótum á fyrsta stigi úrtökukeppninnar. Þau fara fram víðs vegar um Evrópu þessa dagana.

Leikið á Suðurvellinum

Mótið fer fram á Suðurvelli Golf-und Country Club Seddiner See. Völlurinn var hannaður af hinum þekkta bandaríska golfvallahönnuði Robert Trent Jones Jr. og var opnaður árið 1997.

Suðurvöllurinn er par 72 og er 6.486 metra langur. Hann hefur áður verið notaður í stór alþjóðleg mót, þar á meðal á Ladies European Tour, síðast árið 2024.

Svona virka úrtökumót DP World Tour

Úrtökukeppnin, sem oftast er kölluð Q-School, skiptist í þrjú stig. Kylfingur sem hefur leik á fyrsta stigi getur leikið allt að 252 holur á leið sinni að mótaröðinni.

Fyrsta stigið samanstendur af tíu 72 holu mótum. Þeir kylfingar sem komast áfram leika á öðru stigi, sem fer fram á fjórum völlum á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember. Þar verða einnig leiknar 72 holur og ákveðinn fjöldi efstu kylfinga á hverjum velli tryggir sér sæti á lokastiginu.

Lokastigið fer fram á INFINITUM Golf í Tarragona á Spáni dagana 6.-11. nóvember. Þar mæta 156 kylfingar til leiks og leika sex hringi. Eftir fyrstu fjóra hringina verður keppendahópurinn skorinn niður áður en lokahringirnir tveir fara fram.

Að loknu lokastiginu fá 15 efstu kylfingarnir og þeir sem eru jafnir í 15. sæti keppnisréttindi á DP World Tour fyrir tímabilið 2027 ásamt fullum keppnisrétti á HotelPlanner Tour.

Rástímar okkar kylfinga má sjá hér að neðan – allir eru þeir að staðartíma í Þýskalandi:

  • Ragnar Garðarsson – 08:40 af 1. teig
  • Sigurður Arnar Garðarsson – 08:50 af 10. teig
  • Aron Snær Júlíusson – 09:00 af 1. teig
  • Jóhann Frank Halldórsson – 09:20 af 10. teig
  • Logi Sigurðsson – 09:30 af 1. teig
  • Dagbjartur Sigurbrandsson – 10:20 af 10. teig
  • Hlynur Bergsson – 10:30 af 1. teig
  • Tómas Eiríksson Hjaltested – 10:30 af 10. teig

Rástímar, staða og úrslit mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ