Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, er jöfn í efsta sæti fyrir lokahring Women’s English Open mótsins á LET Access mótaröðinni. Mótið fer fram á The Manchester Golf Club dagana 8.-10. júlí og eru leiknir þrír keppnishringir. Um er að ræða eitt af stærri mótum tímabilsins á LET Access mótaröðinni, en verðlaunafé mótsins er 80.000 evrur.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru einnig á meðal keppenda mótsins, en allir íslensku kylfingarnir hófu mótið vel.
Ragnhildur lék best af íslensku kylfingunum á fyrsta hring og endurtók leikinn í dag þegar hún kom í hús á 65 höggum, sjö undir pari vallarins. Hún byrjaði hringinn af ótrúlegum krafti, fékk fjóra fugla á fyrstu fjórum holunum og var komin fimm undir par eftir sjö holur.

Ragnhildur er jöfn í efsta sæti mótsins fyrir lokahringinn á tíu höggum undir pari. Hin enska Thalia Martin er einnig á tíu höggum undir pari. Hún lék hring dagsins á níu höggum undir pari og var sú eina sem lék betur en Ragnhildur í dag. Þær hefja leik kl. 11:20 að staðartíma á morgun og verður spennandi að fylgjast með.
Hulda Clara og Andrea hafa verið samstíga á fyrstu keppnisdögum mótsins. Þær léku báðar á 71 höggi á fyrsta hring og á 69 höggum í dag. Þær sitja jafnar í sautjánda sæti á fjórum höggum undir pari og eru einungis þremur höggum frá því að vera á meðal fimm efstu.
Hulda og Andrea leika saman í holli á morgun og hefja leik kl. 10:08 að staðartíma.
Þetta er enn eitt mótið í sumar þar sem íslenska þríeykið leikur vel. Hulda Clara hefur þegar unnið mót á tímabilinu og er í sjötta sæti stigalistans. Ragnhildur hefur verið í toppbaráttunni oftar en einu sinni og er tíunda á listanum. Andrea hefur einnig leikið mjög stöðugt golf og náð í gegnum niðurskurð í langflestum mótum. Hún situr í 25. sæti stigalistans, en efstu sjö kylfingarnir í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á LET mótaröðinni.




