Holukeppnishluti Evrópumóta landsliða hófst í dag, fimmtudaginn 9. júlí, og reyndist dagurinn afar góður fyrir íslensku landsliðin.
Ísland vann þrjár af fjórum viðureignum dagsins. Karlalandsliðið lagði Svíþjóð að velli, 3-2, og tryggði sér þar með sæti í efstu deild. Piltalandsliðið vann einnig frábæran sigur, 3.5-1.5 gegn Sviss, og tryggði sömuleiðis sæti sitt í efstu deild. Stúlknalandsliðið lagði Tyrkland 3-2 í C-riðli eftir góða spilamennsku.
Kvennalandsliðið átti einnig góðan dag þrátt fyrir naumt tap gegn Hollandi. Viðureignin endaði 3-2 fyrir Hollandi eftir spennandi leik þar sem úrslitin réðust í bráðabana.
Karlalandsliðið vann Svíþjóð og heldur sæti sínu í efstu deild
Karlalandsliðið mætti Svíþjóð í dag og vann þar sterkan 3-2 sigur. Með sigrinum tryggði Ísland sér áframhaldandi sæti í efstu deild á næsta ári.
Aron Emil Gunnarsson og Skúli Gunnar Ágústsson komu Íslandi vel af stað í fjórmenningnum þar sem þeir unnu Jakob Melin og Alfons Bondesson, 3&2.
Sigurður Bjarki Blumenstein kláraði leikinn með sigri gegn Simon Hovdal á 19. holu. Veigar Heiðarsson sótti einnig stig fyrir íslenska liðið með góðum sigri á Filip Fahlberg Johnsson.
Úrslit Íslands gegn Svíþjóð:
Aron Emil Gunnarsson / Skúli Gunnar Ágústsson unnu Jakob Melin / Alfons Bondesson, 3&2
Sigurður Bjarki Blumenstein vann Simon Hovdal, 19. hola
Tómas Eiríksson Hjaltested tapaði fyrir Wilhelm Ryding, 2&1
Gunnlaugur Árni Sveinsson tapaði fyrir Wilmer Edero, 4&3
Veigar Heiðarsson vann Filip Fahlberg Johnsson, 2&1
Íslenska liðið mætir Wales á morgun. Með sigri í leiknum mun liðið leika gegn Þýskalandi eða Belgíu um 9. sætið á lokadegi mótsins.
Hér má fylgjast með stöðunni hjá karlalandsliðinu

Kvennalandsliðið tapaði í bráðabana
Kvennalandsliðið mætti Hollandi í B-riðli og tapaði með minnsta mun. Hollendingar höfðu betur, 3-2, eftir að úrslitin í fjórmenning réðust á 20. holu.
Eva Kristinsdóttir vann öruggan sigur gegn Minouche Rooijmans, 6&5, og Elsa Maren Steinarsdóttir vann Rosanne Boere, 3&2.
Hollendingar unnu hins vegar þrjá leiki, þar af fjórmenninginn gegn Fjólu Margréti Viðarsdóttur og Guðrúnu Jónu Nolan Þorsteinsdóttur á 20. holu.
Úrslit Íslands gegn Hollandi:
Fjóla Margrét Viðarsdóttir / Guðrún J. Nolan Þorsteinsdóttir töpuðu fyrir Fleur van Beek / Marieke Ebens, 20. hola
Eva Kristinsdóttir vann Minouche Rooijmans, 6&5
Karen Lind Stefánsdóttir tapaði fyrir Noa van Beek, 2&1
Perla Sól Sigurbrandsdóttir tapaði fyrir Anne-Sterre den Dunnen, 4&2
Elsa Maren Steinarsdóttir vann Rosanne Boere, 3&2
Kvennalandsliðið mætir Tékklandi á morgun í næstu umferð B-riðils.
Hér má fylgjast með stöðunni hjá kvennalandsliðinu

Piltalandsliðið lagði Sviss og leikur áfram í efstu deild að ári
Piltalandsliðið átti frábæran dag á Spáni þar sem liðið lagði Sviss að velli, 3.5-1.5. Með sigrinum tryggði íslenska liðið sæti sitt í efstu deild að ári.
Úrslit Íslands gegn Sviss:
Björn Breki Halldórsson / Kristján Karl Guðjónsson unnu Paul Vaglio / Maxim Moreau, 2&1
Gunnar Þór Heimisson vann Niklas Kaufmann, 2 holur
Hjalti Kristján Hjaltason vann Jonas Müller, 2&1
Óliver Elí Björnsson tapaði fyrir Euan Robertson, 5&3
Arnar Daði Svavarsson gerði jafntefli við Tim Eduard Franzl
Það er sannkölluð norræn veisla í B-riðlinum næstu daga. Íslenska liðið mætir Svíþjóð í leik morgundagsins. Sigurvegari leiksins mætir Danmörku eða Noregi um 9. sæti mótsins.
Hér má fylgjast með stöðunni hjá piltalandsliðinu

Stúlknalandsliðið vann Tyrkland
Stúlknalandsliðið mætti Tyrklandi í C-riðli í dag og vann góðan 3-2 sigur.
Eva Fanney Matthíasdóttir og Bryndís Eva Ágústsdóttir unnu fjórmenninginn gegn Elif Demirci og Duru Taskin, 3&1.
Embla Hrönn Hallsdóttir bætti við öðrum vinningi fyrir Ísland með 2&1 sigri gegn Aida Tepe og Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir vann sannfærandi sigur gegn Ada Narin, 5&4.
Tyrkir unnu tvo leiki en íslenska liðið hélt út og tryggði sér sigur í viðureigninni.
Úrslit Íslands gegn Tyrklandi:
Eva Fanney Matthíasdóttir / Bryndís Eva Ágústsdóttir unnu Elif Demirci / Duru Taskin, 3&1
Lilja Maren Jónsdóttir tapaði fyrir Ada Zorbozan, 1 hola
Embla Hrönn Hallsdóttir vann Aida Tepe, 2&1
Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir vann Ada Narin, 5&4
Pamela Ósk Hjaltadóttir tapaði fyrir Deniz Sapmaz, 3&1
Íslenska liðið situr hjá á morgun en mætir hollenska liðinu á laugardaginn í lokaleik mótsins.
Hér má fylgjast með stöðunni hjá stúlknalandsliðinu

Við munum áfram fylgjast með gengi íslensku liðanna á helstu miðlum GSÍ.




