Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir hófu allar leik á Women’s English Open mótinu á LET Access mótaröðinni í Englandi í gær.
Mótið fer fram á The Manchester Golf Club dagana 8.-10. júlí og eru leiknir þrír keppnishringir. Um er að ræða eitt af stærri mótum tímabilsins á LET Access mótaröðinni, en verðlaunafé mótsins er 80.000 evrur.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Ragnhildur lék best af íslensku kylfingunum á fyrsta hringnum en hún kom í hús á 69 höggum, eða þremur höggum undir pari. Hún fékk fimm fugla og tvo skolla á hringnum og er jöfn í tíunda sæti.
Hulda Clara og Andrea léku báðar á 71 höggi, eða einu höggi undir pari, og eru jafnar í 31. sæti. Hulda Clara fékk fjóra fugla og þrjá skolla á hringnum, á meðan Andrea lék litríkan hring þar sem hún fékk einn örn, sex fugla, þrjá skolla og einn fjórfaldan skolla.
Allar eru þær því undir pari eftir fyrsta hring og í góðri stöðu þegar tveir hringir eru eftir.
Bandaríkjakonan Katherine Schuster er efst eftir fyrsta hring á 64 höggum, eða átta höggum undir pari. Alls eru 132 kylfingar frá 37 löndum með í mótinu og voru 44 þeirra undir pari eftir fyrsta keppnisdag.
Annar hringurinn fer fram í dag. Hulda Clara hefur leik kl. 13:10, Andrea kl. 13:20 og Ragnhildur kl. 14:00 að staðartíma.




