Auglýsing

Opnað hefur verið fyrir skráningu í þriðja mót tímabilsins 2017-2918 á Eimskipsmótaröðinni.

Egils Gull mótið fer fram á Garðavelli á Akranesi dagana 18.-20. maí.

Leikfyrirkomulagið er höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á dag.

Niðurskurður verður eftir annan hring en þá komast áfram alls 84 leikmenn 63 efstu úr karlaflokki og 21 efstu úr kvennaflokki.

Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl.17:00 á miðvikudeginum fyrir mót. Á fyrsta keppnisdegi fer rástími keppenda eftir forgjöf en síðan verður raðað út eftir skori. Alla þrjá dagana verður ræst út frá kl. 7:30.

Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 120, þar af hámark 90 í karlaflokki og hámark 30 í kvennaflokki. Þátttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn.

Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.

Mótin á Eimskipsmótaröðinni 2017-2018 sem eru á dagskrá á þessu ári:

Maí

8-10 EIMSKIPSMÓTARÖÐIN – Símamótið (4 ’17-18) Hlíðavöllur, GM


Júní

20-22 EIMSKIPSMÓTARÖÐIN -KPMG- Hvaleyrabikarinn (6 ’17-18) Hvaleyrarvöllur, GK

Júlí

26-29 EIMSKIPSMÓTARÖÐIN – Íslandsmótið í höggleik (7 ’17-18) Vestmannaeyjavöllur, GV


Ágúst

23-25 EIMSKIPSMÓTARÖÐIN – Securitasmótið – GR bikarinn (8 ’17-18) – Lokamót Grafarholtsvöllur, GR


September

8-9 EIMSKIPSMÓTARÖÐIN Pro/Am – Honda Classic – (Off – Venue) Leirdalsvöllur, GKG

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ