Auglýsing

Í dag hefja alls níu íslenskir kylfingar keppni á GEBWELL meistaramótinu sem fram fer á Sand Valley vellinum í Póllandi. Þetta er annað mótið af alls þremur sem fram fara á þessum velli og eru hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Mótið hófst í dag 13. apríl og lokahringurinn fer fram 15. apríl. Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Íslenskur keppendurnir eru: Aron Snær Júlíusson (GKG), Axel Bóasson (GK), Andri Þór Björnsson (GR), Bjarki Pétursson (GKG), Daníel Ísak Steinarsson (GK), Hákon Örn Magnússon (GR), Ragnar Már Garðarsson (GKG), Sigurður Arnar Garðarsson (GKG) og Svanberg Addi Stefánsson (GK). Aron Bergsson, er einnig á meðal keppenda, en hann á íslenska foreldra en hefur búið að mestu í Svíþjóð. Systir Arons, Andrea Bergsdóttir, hefur leikið með íslenska kvennalandsliðinu undanfarin ár.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Póllandi.

Fyrir tveimur dögum lauk móti á þessum sama stað.

Axel Bóasson, GK, endaði í þriðja sæti á -10 samtals (70-69-67), Andri Þór Björnsson, GR, endaði í 11. sæti á -6 samtals (68-69-73), Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, lék á -5 og endaði í 17. sæti. Sigurður Arnar setti vallarmet á öðrum keppnisdegi þegar hann lék á 65 höggum eða -7. Hann bætti vallarmetið um eitt högg. Bjarki Pétursson, GKG, endaði í 40. sæti á pari vallar samtals (68-75-75).

Hákon Örn Magnússon, GR, Aron Snær Júlíusson, GKG léku á pari vallar á fyrstu tveimur hringjunum og komust ekki í gegnum niðurskurðinn. Daníel Ísak Steinarsson, GK, Ragnar Már Garðarsson, GKG, og Svanberg Addi Stefánsson, GK komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi mótaröð fer fram í Póllandi. Mótið er það fyrsta af alls þremur sem fram fer á þessu svæði næstu daga. Alls eru 152 keppendur og koma þeir frá 11 löndum.

Lokamótið og það þriðja í röðinni hefst mánudaginn 17. apríl en það mót heitir Valley Spring Series Final.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ