Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, eru báðar á meðal keppenda á móti sem hófst í dag á LET Access mótaröðinni, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki.

Guðrún Brá er einnig með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Ragnhildur og Guðrún Brá keppa Terre Blanche vellinum í Frakklandi. Leiknir verða þrír 18 holur hringir á þremur keppnisdögum. Eftir 2. keppnisdag verður niðurskurður og komast 45 efstu í gegnum niðurskurðinn.

Guðrún Brá og Ragnhildur hefja leik um kl.. 9:30 í dag.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit úr mótinu í Frakklandi.

Alls eru 120 keppendur frá 23 þjóðum á þessu móti en keppnisdagskrá LET Access mótaraðarinnar er í heild sinni hér.

Á keppnisdagskrá LET Access mótaraðarinnar eru alls 17 mót sem fram fara í sjö mismunandi löndum. Heildarverðlaunafé á tímabilinu er um 120 milljónir kr.

Sigurvegari mótsins fær rúmlega 1 milljón kr. í verðlaunafé en heildarverðlaunaféð á mótinu er 6.2 milljónir kr.

Völlurinn var opnaður árið 2004 og hefur LET Access mótaröðin margoft farið fram á þessu svæði. Fyrst var keppt árið 2010 á LET Access og er þetta í níunda skiptið sem mótið fer fram á Terre Blanche golfsvæðinu sem var valið það annað besta í Evrópu hjá Golf World tímaritinu í fyrra.

Keppnisvöllurinn er par 72 og 5459 metrar að lengd. Til samanburðar eru hvítir teigar á Grafarholtsvelli 6.050 metrar og gulir teigar á sama velli eru um 5.500 metrar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ