GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Aerial view of a coastal golf course surrounded by water with event logos and the text '30.-31. MAÍ NESVÖLLUR' at the bottom.
Golf 14 tímabilið hefst þann 30. maí
Auglýsing

Fyrsti viðburður Golf 14 tímabilsins fer fram á Nesvelli Nesklúbbsins dagana 30.-31. maí.

Metfjöldi kylfinga er skráður í mótið, en þangað mæta 167 sprækir keppendur á aldrinum 14 ára og yngri. Ræst verður út á laugardeginum frá 08:00 að morgni til 18:30 að kvöldi.

Poster for Keppendur 167 golf event showing a lighthouse, a green fairway, and two golfers with a golf cart; Golf14 logo bottom left.
Ótrúlegur áhugi hefur verið á mótinu

Þessi mót eru hugsuð sem fyrstu skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan er lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin.

Hér má sjá rástíma og stöðuna í mótinu

Keppt er í flokkum 10 ára og yngri, 11-12 ára og 13-14 ára. Flokkur 13-14 ára leikur átján holur á laugardeginum og níu holur á sunnudegi. Hinir flokkarnir leika níu holur á báðum keppnisdögum mótsins.

Einnig verður liðakeppni í mótinu, þar sem teiggjöfin raðar kylfingum í lið.

Á sunnudeginum fer fram púttkeppni á 9 holu púttvelli á svæðinu, þar sem keppendur leika í skemmtilegri aukakeppni. Skor allra þátttakenda verða skráð og sá leikmaður sem fer völlinn á fæstum höggum stendur uppi sem púttmeistari og hlýtur verðlaun.

Keppendur sem eiga snemma rástíma á sunnudeginum pútta eftir hringinn sinn en þeir sem eiga seinni rástíma pútta áður en þeir hefja leik.

Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í öllum flokkum og svo verður pylsupartý að leik loknum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ