Magnaður lokahringur hjá Valdísi Þóru – fór upp um 20 sæti í Dubaí
Sigurður Elvar
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, átti frábæran lokahring á móti Omega Dubaí Moonligth Classic á LET Evrópumótaröðinni í dag.
Mótið fór fram á hinum þekkta Faldo velli á Emirates Golf Club.
Valdís lék lokhringinn á 68 höggum eða -4 en hún lék hringina þrjá á +3 samtals (72-79-68).