Íslandsmótið í golfi fer fram dagana 6.-9. ágúst á Korpúlfsstaðavelli. Á svona veglegu og flottu móti þarf margar hendur til að tryggja að allt gangi sem best.
Markmið GR og GSÍ er að skapa glæsilega umgjörð fyrir bæði keppendur og áhorfendur og gera Íslandsmótið að eftirminnilegum viðburði. Til þess þurfum við á öflugum hópi sjálfboðaliða að halda og leitum því til félagsmanna Golfklúbbs Reykjavíkur eftir aðstoð.
Við leitum meðal annars að sjálfboðaliðum í eftirtalin verkefni:
Framverði og gæslu áhorfenda.
Bílastæðavörslu / Leiðaraaðstoð
Bera sand í kylfuför (kvöldvinna)
Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast framkvæmd mótsins.
Allir sjálfboðaliðar fá vinnufatnað frá 66°Norður meðan á mótinu stendur. Einnig verður sérstök aðstaða fyrir sjálfboðaliða á 2. hæð í Korpu þar sem boðið verður upp á veitingar og góða hvíldaraðstöðu á milli verkefna.
Boðið verður upp á þrjár vaktir á hverjum keppnisdegi:
Morgunvakt: kl. 7:00–11:00
Miðdagsvakt: kl. 10:30–16:00
Síðdegisvakt: kl. 15:30–20:30
Við vonum innilega að sem flestir sjái sér fært að leggja hönd á plóg og taka þátt í þessu stóra verkefni. Það er bæði ánægjulegt og gefandi að taka þátt í mótahaldi sem þessu, kynnast öðrum félagsmönnum og leggja sitt af mörkum til að gera Íslandsmótið að glæsilegri upplifun fyrir alla.
Skráðu þig sem sjálfboðaliða á heimasíðu grgolf.is og vertu hluti af stærsta golfmóti ársins. Við hlökkum til að starfa með þér!




