GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

A man smiles beside a woman putting on a seaside golf green with a child watching nearby.
Efnilegur kylfingur
Auglýsing

Síðasti Golfdagur sumarsins fór fram hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja þann 19. júlí. Golfdagarnir eru ætlaðir fyrir alla fjölskylduna og eru frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni. Boðið var upp á skemmtilega kynningu á grunnatriðum íþróttarinnar, grill við klúbbhúsið, alls kyns veitingar og þátttakendum færðar gjafir frá KPMG og GSÍ.

Mæting var með besta móti þrátt fyrir misgott veður og tók klúbburinn vel á móti þeim sem sóttu viðburðinn. Milli 50-60 manns sóttu Golfdaginn og ríkti mikil gleði á svæðinu.

Golfdagar sumarsins reyndust einstaklega vel heppnaðir og þökkum við öllum klúbbunum fyrir framkvæmd Golfdaganna og stuðning þeirra við vöxt íþróttarinnar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ