Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, átti frábæran lokahring á móti Omega Dubaí Moonligth Classic á LET Evrópumótaröðinni í dag.
Mótið fór fram á hinum þekkta Faldo velli á Emirates Golf Club.
Valdís lék lokhringinn á 68 höggum eða -4 en hún lék hringina þrjá á +3 samtals (72-79-68).
Á lokahringnum fór Valdís Þóra upp um 20 sæti.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-05-03-at-4.58.43-PM-1024x232.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/47694913782_d4ff945e45_z.jpg)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/47688257172_687509a540_z.jpg)