Íslandsmót unglinga í holukeppni 2026 fer fram á Svarfhólsvelli á Selfossi dagana 23.-25. júlí. Keppt verður um Íslandsmeistaratitla í átta aldursflokkum, allt frá 12 ára og yngri upp í 17–18 ára.
Hér má sjá rástíma, stöðu og úrslit mótsins
Keppt er í eftirtöldum flokkum:
Stúlknaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – rauðir teigar
Stelpnaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – rauðir teigar
Stúlknaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0 – bláir teigar
Stúlknaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 15,0 – bláir teigar
Drengjaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – rauðir teigar
Drengjaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – bláir teigar
Drengjaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0 – gulir teigar
Drengjaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 15,0 – hvítir teigar
Leiknar verða 14 holur í öllum flokkum og ræðst fyrirkomulag mótsins af aldri keppenda. Í flokkum 12 ára og yngri og 13-14 ára hefst keppnin á höggleik án forgjafar. Átta efstu kylfingarnir í hverjum flokki komast áfram í holukeppni, þar sem leikið verður til úrslita.
Í flokkum 15-16 ára og 17-18 ára verður leikin útsláttarkeppni án forgjafar. Allt að 16 kylfingar hefja leik í hverjum flokki og verður þeim raðað upp eftir stöðu á stigamótaröð unglinga. Stigahæsti keppandinn mætir þeim stigalægsta og svo koll af kolli. Verði átta eða færri skráðir í flokki hefst keppnin beint í átta manna úrslitum.




