Auglýsing

Golfklúbburinn Leynir frá Akranesi fagnaði sigri á Íslandsmóti golfklúbba 18 ára og yngri í drengjaflokki. Leynir sigraði Golfklúbb Mosfellsbæjar, GM, í úrslitaleiknum sem fram fór í dag á Strandarvelli á Hellu. Leynir sigraði GM í úrslitaleiknum 2/1 en þessi lið enduðu í fimmta og sjötta sæti í höggleikskeppninni – tveimur neðstu sætunum og komu því töluvert á óvart í riðlakeppninni þar sem að keppt var í holukeppni. Elsa Maren Steinarsdóttir lék stórt hlutverk í liði Leynis en hún var ein af þremur stúlkum sem kepptu með drengjaliðum í þessum aldursflokki.

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, sigraði Golfklúbb Reykjavíkur, GR, í leiknum um þriðja sætið.

Alls tóku sex klúbbar þátt og endaði Golfklúbbur Selfoss, GOS, í fimmta sæti og Golfklúbburinn Keilir varð í sjötta sæti.

Leikinn var höggleikur í fyrstu umferð til þess að raða liðum niður í riðla fyrir holukeppnina. Þar endaði lið Leynis í fimmta sæti en Akurnesingar unna báða leikina í riðlakeppninni gegn GR og GK, og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.

Lið GM endaði í sjötta og neðsta sæti í höggleikskeppninni en liðið vann báða leikina í riðlinum, fyrst gegn GKG og gegn GOS í 2. umferð.

<strong>Frá vinstri Nói Claxton Bragi Friðrik Bjarnason Kári Kristvinsson Tristan Freyr Traustason Elsa Maren Steinarsdóttir Björn Viktor Viktorsson liðsstjóri MyndBEG <strong>
<strong>Lið GM Dagur Þór Óskarsson Oliver Thor Hreiðarsson Kristian Óskar Sveinbjörnsson og Tristan Snær Viðarsson MyndBEG<strong>
<strong>Lið GKG Frá vinstri Jóhannes Sturluson Jósef Ýmir Jensson Róbert Leó Arnórsson Dagur Fannar Ólafsson Gunnlaugur Árni Sveinsson Arnar Már Ólafsson þjálfari og Úlfar Jónsson íþróttastjóri GKG MyndBEG<strong>

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit leikja:

Smelltu hér fyrir myndasafn frá mótinu.

Í holukeppninni var leikinn einn fjórmenningur og tveir tvímenningsleikir. Í fjórmenningsleikjunum eru tveir leikmenn saman í liði og leika þeir einum bolta og slá þeir upphafshöggin til skiptis. Í tvímenningnum er einn leikmaður úr hvoru liði sem keppa gegn hvorum öðrum í holukeppni.

Liðin sem tóku þátt í drengjaflokki 18 ára og yngri eru:

GKG (Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar)
GM (Golfklúbbur Mosfellsbæjar)
GR (Golfklúbbur Reykjavíkur)
GL (Golfklúbburinn Leynir)
GOS (Golfklúbbur Selfoss)
GK (Golfklúbburinn Keilir)


Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ