GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

f.v. Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ, Bjarni Þórhallsson, formaður GA, Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA og Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ.
Auglýsing

Golfklúbbur Akureyrar hlaut Sjálfbærniverðlaun Golfsambands Íslands 2026 á formannafundi GSÍ, sem haldinn var á Jaðarsvelli þann 7. nóvember. Verðlaunin eru veitt klúbbi sem sýnir metnaðarfulla og ábyrga nálgun í rekstri, vallarumhirðu, félagsstarfi og uppbyggingu íþróttarinnar.

GA hefur á undanförnum árum tengt saman umhverfislega og samfélagslega ábyrgð, nýsköpun í vallarumhirðu og öfluga uppbyggingu aðstöðu og íþróttastarfs. Klúbburinn skapar tækifæri fyrir fólk á öllum aldri, af öllum kynjum og með ólíka getu og gegnir mikilvægu hlutverki í eflingu golfs á landsbyggðinni.

GA hefur verið í fararbroddi í sjálfbærnistarfi golfhreyfingarinnar, tekið þátt í gagnaverkefnum GSÍ og hlotið GEO-vottun sem staðfestir ábyrga starfshætti samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum. Á árinu 2026 efldi GSÍ sjálfbærnisýn sína með samstarfi við GEO Foundation og innleiðingu OnCourse-kerfisins.

Meðal þess sem lagt er til grundvallar viðurkenningunni eru umbætur í vallarumhirðu á Jaðarsvelli. Notkun slátturóbóta hefur bætt gæði sláttar, dregið úr eldsneytisnotkun og minnkað hávaða og losun. Uppistöðulón fyrir vökvun stuðlar að ábyrgri vatnsnotkun og endurnýting véla og aðfanga er hluti af daglegum rekstri klúbbsins.

Uppbygging inniaðstöðunnar á Jaðri vegur einnig þungt. Þar eru átta Trackman-hermar, pútt- og vippaðstaða sem gera kylfingum á öllum aldri kleift að stunda íþróttina allt árið. Í rökstuðningi valsins er sérstaklega tekið fram að sjálfboðaliðastarfið við uppbygginguna sýni vel þann kraft sem búi í félaginu og nærsamfélaginu á Akureyri.

Þá er öflugt ungmennastarf GA dregið fram, ásamt markvissu starfi að nýliðun. Ungir kylfingar klúbbsins náðu góðum árangri á árinu 2026, ekki síst ungar stúlkur sem hafa orðið sýnilegar fyrirmyndir fyrir næstu kynslóð. Klúbburinn á fulltrúa í landsliðum í ungmenna- og fullorðinsflokkum og inniaðstaðan hefur nýst til sameiginlegra landsliðsæfinga. Golfskóli GA auðveldar jafnframt nýjum iðkendum fyrstu skrefin og styður við áframhaldandi þátttöku.

Að baki árangrinum stendur samstillt starf þjálfara, stjórnenda, starfsfólks og sjálfboðaliða. Með viðurkenningunni er því starfi fagnað og vakin athygli á því hvernig sjálfbærni getur verið hluti af daglegum rekstri golfklúbbs, uppbyggingu aðstöðu og þjónustu við nærsamfélagið.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ