Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 18 ára og yngri fer fram á Strandarvelli á Hellu dagana 22.-24. júní.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit leikja:

Smelltu hér fyrir myndasafn frá mótinu.

Í stúlknaflokki eru þrjú lið sem taka þátt. Í stúlknaflokki er keppt í einum riðli og leikin ein umferð í riðlinum þar sem öll liðin mæta hvort öðru einu sinni.

Í drengjaflokki eru 6 lið sem taka þátt. Í drengjaflokki er leikinn höggleikur í dag og úrslit höggleiksins ráða því hvort liðin leika í A eða B riðli í holukeppninni.

Þrjú bestu skorin hjá hverju liði telja í höggleikskeppninni.

Í holukeppninni er leikinn einn fjórmenningur og tveir tvímenningsleikir. Í fjórmenningsleikjunum eru tveir leikmenn saman í liði og leika þeir einum bolta og slá þeir upphafshöggin til skiptis. Í tvímenningnum er einn leikmaður úr hvoru liði sem keppa gegn hvorum öðrum í holukeppni.

Fjögur efstu liðin úr höggleiknum leika í A-riðli og keppa þar um Íslandsmeistaratitilinn og sæti 1-4. Í B-riðli er keppt um sæti 5-8.

Liðin sem taka þátt í stúlknaflokki 18 ára og yngri eru:

GM (Golfklúbbur Mosfellsbæjar).
GR (Golfklúbbur Reykjavíkur)
GKG (Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar).

Liðin sem taka þátt í drengjaflokki 18 ára og yngri eru:

GKG (Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar)
GM (Golfklúbbur Mosfellsbæjar)
GR (Golfklúbbur Reykjavíkur)
GL (Golfklúbburinn Leynir)
GOS (Golfklúbbur Selfoss)
GK (Golfklúbburinn Keilir)


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ