Rósa Jónsdóttir hlaut gullmerki Golfsambands Íslands og Steindór Kristinn Ragnarsson silfurmerki sambandsins á formannafundi GSÍ á Akureyri laugardaginn 7. nóvember. Þau hlutu viðurkenningarnar fyrir framlag sitt til íslensks golfs.
Rósa er formaður Golfklúbbs Fjallabyggðar og hefur um árabil verið burðarás í golfstarfinu í Ólafsfirði. Hún hefur leitt uppbyggingu Skeggjabrekkuvallar og gengið í öll störf hjá klúbbnum. Rósa hefur einnig lagt golfhreyfingunni lið á landsvísu með setu og trúnaðarstörfum í stjórn GSÍ. Með gullmerkinu er henni þakkað fyrir áralangt og óeigingjarnt starf í þágu íþróttarinnar.
Steindór hlaut silfurmerki GSÍ. Hann er framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar og var vallarstjóri klúbbsins til margra ára. Þá er hann formaður SÍGÍ, Samtaka íþrótta- og golfvallarstarfsmanna á Íslandi, og hefur verið öflugur talsmaður fagmennsku í umhirðu golfvalla. Framlag hans hefur þannig nýst bæði við uppbyggingu á Jaðri og í samstarfi og miðlun þekkingar meðal vallarstarfsmanna.
Golfsamband Íslands óskar Rósu og Steindóri innilega til hamingju með viðurkenningarnar og þakkar þeim fyrir verðmæt störf í þágu golfíþróttarinnar.


