Auglýsing

Íslandsmótið í holukeppni 2023 fer fram dagana 21.-23. júlí á Hamarsvelli í Borgarnesi. 

Viðamiklar breytingar hafa verið gerðar á keppnisfyrirkomulagi mótsins – eins og sjá má í þessari frétt frá því í mars á þessu ári.

Mótsstjórn Íslandsmótsins í holukeppni 2023 hefur ákveðið að ekki verði undankeppni um fjögur síðustu sætin í hvorum flokki ef umframskráning verður í viðkomandi flokki sem nemur a.m.k. sex sætum.

Hér fyrir neðan er nýja fyrirkomulagið útskýrt og ýmsum spurningum svarað. 

Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5.5 og í kvennaflokki 8.5 – og er athygli vakin á því að allir kylfingar sem eru með forgjöf sem er undir hámarksforgjöf mótsins geta skráð sig til keppni. 

Skráningarfrestur rennur út miðvikudaginn 12. júlí 2023 kl. 23:59. 

Smelltu hér til að skrá þig. 

Nánar um mótið hér.

Hverju var breytt?

Stjórn GSÍ samþykkti breytinguna á fundi sínum þann 20. mars 2023.

Í stað riðlakeppni og útsláttarkeppni 32 keppenda af hvoru kyni munu nú a.m.k. 42 keppendur af hvoru kyni geta tekið þátt í 36 holu undankeppni í höggleik sem fram fer 21. júlí 2023.

Að henni lokinni fara 16 efstu keppendurnir í hreina útsláttarkeppni í holukeppni.

 

Geta allir tekið þátt?

Allir kylfingar sem eru undir hámarksforgjöf mótsins og eru félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ geta skráð sig til leiks.

Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis.

Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5.

Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Skráningarfrestur rennur út kl. 23:59 miðvikudaginn 12. júlí 2023. Smelltu hér til að skrá þig.

Hverjir eru nú þegar með keppnisrétt?

Þátttökurétt í hvorum flokki hafa:

  • Ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni.
  • Þrír efstu Íslendingar á heimslista atvinnumanna (www.owgr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að lokaskráningarfresti lýkur.
  • Þrír efstu Íslendingar á heimslista áhugamanna (www.wagr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að lokaskráningarfresti lýkur.
  • Stigahæstu kylfingar á stigamótaröðinni, þar til 32 þátttakendum er náð. Stig reiknast þannig að við stig ársins bætast stig frá síðasta ári, frá og með fyrsta stigamóti eftir Íslandsmótið í holukeppni, þ.e. síðasta Íslandsmót í holukeppni telur ekki í stigafjöldanum.
  • Forgjafarlægstu kylfingarnir sem eru skráðir til leiks eftir að skráningarfresti lýkur, þar til hámarksfjölda er náð.
Ég er ekki á stigalistanum - get ég tekið þátt?

Já þeir kylfingar sem eru ekki á stigalistanum geta skráð sig til leiks. Þátttökurétt í hvorum flokki hafa:

  • Ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni.
  • Þrír efstu Íslendingar á heimslista atvinnumanna (www.owgr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að lokaskráningarfresti lýkur.
  • Þrír efstu Íslendingar á heimslista áhugamanna (www.wagr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að lokaskráningarfresti lýkur.
  • Stigahæstu kylfingar á stigamótaröðinni, þar til 32 þátttakendum er náð. Stig reiknast þannig að við stig ársins bætast stig frá síðasta ári, frá og með fyrsta stigamóti eftir Íslandsmótið í holukeppni, þ.e. síðasta Íslandsmót í holukeppni telur ekki í stigafjöldanum.
  • Forgjafarlægstu kylfingarnir sem eru skráðir til leiks eftir að skráningarfresti lýkur, þar til hámarksfjölda er náð.
Stigalistarnir eru hér!

Stigalistinn í kvennaflokki er hér: 

Stigalistinn í karlaflokki er hér:

Eins og áður segir geta kylfingar sem eru ekki á stigalistanum geta skráð sig til leiks. Þátttökurétt í hvorum flokki hafa:

  • Ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni.
  • Þrír efstu Íslendingar á heimslista atvinnumanna (www.owgr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að lokaskráningarfresti lýkur.
  • Þrír efstu Íslendingar á heimslista áhugamanna (www.wagr.com) kl. 8:00 morguninn eftir að lokaskráningarfresti lýkur.
  • Stigahæstu kylfingar á stigamótaröðinni, þar til 32 þátttakendum er náð. Stig reiknast þannig að við stig ársins bætast stig frá síðasta ári, frá og með fyrsta stigamóti eftir Íslandsmótið í holukeppni, þ.e. síðasta Íslandsmót í holukeppni telur ekki í stigafjöldanum.
  • Forgjafarlægstu kylfingarnir sem eru skráðir til leiks eftir að skráningarfresti lýkur, þar til hámarksfjölda er náð.
Hvað gerist ef það er ekki full skráning í flokk?

Verði ekki full skráning í annan flokkinn skal fjölgað í hinum flokknum sem því nemur.

Smelltu hér til að skrá þig!

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ