/

Deildu:

Frá Leirdalsvelli. Mynd/GKG
Auglýsing

Íslandsmót eldri kylfinga 2024 fer fram á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar dagana 27.-29. júní.  Golfsamband Íslands er framkvæmdaraðili mótsins. 

Opið er fyrir skráningu en skráningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 12. júní. 

Nánari upplýsingar um mótið eru hér fyrir neðan:

advanced divider
advanced divider

 

Íslandsmót eldri kylfinga 2024 – keppnisskilmálar

Þátttökugjöld og skráning

Skráningarfrestur miðvikudaginn 12. júní kl. 23:59. 

Þátttökugjöld skulu greidd við skráningu. Þátttökugjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þremur dögum fyrir fyrsta keppnisdag. Þátttökugjald í mótið er 21.000 kr. og innifalið er miði á lokahóf í veitingasal GKG.

Leika skal 54 holu höggleik án forgjafar á þremur dögum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um Íslandsmót í golfi í flokkum eldri kylfinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

Hægt er að kynna sér almennar reglur, reglugerðir og staðarreglur fyrir öll Íslandsmót GSÍ á vefsíðunni golf.is/reglugerdir

Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Verði fullt í mótið munu keppendur sem komust ekki inn í mótið fá endurgreitt.

Keppt er í eftirtöldum flokkum:

  • Öldungaflokkur karla 50 ára og eldri – Hámarksforgjöf 18,0 – Teigar 57
  • Öldungaflokkur kvenna 50 ára og eldri – Hámarksforgjöf 26,0 – Teigar 50
  • Öldungaflokkur karla 65 ára og eldri – Hámarksforgjöf 22,0 – Teigar 52
  • Öldungaflokkur kvenna 65 ára og eldri – Hámarksforgjöf 29,0 – Teigar 47

Aldur miðast við almanaksár. Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.

Hámarksfjöldi keppenda er 150 og skulu þeir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur öðlast þátttökurétt. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

Þó skulu að lágmarki 18 kylfingar fá þátttökurétt í hverjum flokki.

Mótsstjórn er heimilt að fjölga keppendum í einstökum flokkum til að fylla í ráshópa, jafnvel þótt heildarfjöldi keppenda fari við það yfir 150.

Forfallist kylfingur eftir að rástímar 1. umferðar hafa verið gefnir út skal sá kylfingur á biðlista sem er með lægstu forgjöf í viðkomandi flokki fá þátttökurétt í ráshópi þess sem forfallaðist.

Í flokkum 65 ára og eldri er notkun golfbíla heimiluð.

Eftir 36 holu leik skal keppendum fækkað þannig að þau 70% keppenda sem eru með besta skor í hverjum flokki halda áfram keppni. Ef keppendur eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi, en nauðsynlegt er að hafa greitt mótsgjald til að mega leika æfingahringinn. Formlegir æfingadagar eru 25. og 26. júní, vinsamlegast hafið samband við proshop@gkg.is til að bóka rástíma.

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir í GolfBox. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað út eftir forgjöf en alla aðra daga verður raðað út eftir skori. 

Ekki verða leyfðar breytingar á útgefnum rástímum eftir birtingu þeirra.

1. hringur, fimmtudagur: Rástímar frá klukkan 07:30 – 15:40

Rásröð: Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+, Karlar 65+

2. hringur, föstudagur: Rástímar frá klukkan 07:30 – 15:40

Rásröð: Karlar 50+, Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+

3. hringur, laugardagur: Rástímar frá klukkan 08:00 – 14:00

Rásröð: Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum án forgjafar.

1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort Icelandair

2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort Icelandair

3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort Icelandair

Lokahóf fer fram á laugardagskvöldi í veitingasal GKG og verða verðlaun afhent þar. Húsið opnar kl. 19 en borðhald og verðlaunaafhending hefst um kl. 20.

Golfbílar

Í golfmótum á vegum GSÍ, að undanskildu Íslandsmóti eldri kylfinga, 65 ára og eldri, skal mótsstjórn aðeins veita þeim keppendum, sem framvísa vottorði frá tilnefndum trúnaðarlækni GSÍ, heimild til að nota golfbíl meðan á keppni stendur. Vottorðið skal staðfesta að keppandinn búi við langvarandi líkamlega fötlun og þurfi á golfbíl að halda við keppni, að því tilskildu að slíkt veiti keppandanum ekki ótilhlýðilegt forskot, sbr. undantekningu 1 við golfreglu 14-3. Trúnaðarlæknar GSÍ er Sveinbjörn Brandsson, sveinbjorn@orkuhusid.is og Valur Guðmundsson, valurgudm@gmail.com.

Umsókn um heimild til notkunar golfbíls skal senda mótanefnd GSÍ að minnsta kosti einni viku áður en mótið hefst. Umsóknin skal send til motanefnd@golf.is og henni skal fylgja afrit vottorðsins.

Mótsstjórn: Arnar Geirsson, Kristín María Þorsteinsdóttir, Ólafur Arnarson, Kjartan H. Bjarnason, Agnar Már Jónsson.

Netfang mótsstjórnar: motanefnd@golf.is

Dómari: Kjartan H. Bjarnason.

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ