Íslenski atvinnukylfingurinn Hulda Clara Gestsdóttir endaði jöfn í áttunda sæti á Madaëf Golfs Ladies Open móti LET Access sem fór fram í Marokkó dagana 12.-14. apríl. Þetta var fyrsta mót tímabilsins á LET Access og jafnframt fyrsta mót Huldu á mótaröðinni.
Hulda lék hringi sína á 72-73-71 höggi og lauk leik á pari í heildina.
Fyrrum Íslandsmeistarinn lék fyrsta hringinn á pari vallarins og var jöfn í ellefta sæti mótsins. Hún lék einnig vel á öðrum hringnum og lauk leik á 73 höggum. Hulda fékk þar tvo skolla á fyrstu sex holunum og lék síðustu tólf holurnar einn undir pari. Síðasti hringurinn reyndist sá besti hjá Huldu í mótinu, en hún fékk á honum þrjá fugla, tvo skolla og kom í hús á 71 höggi. Par 5 holurnar á seinni níu reyndust Huldu vel, en hún fékk þar fimm fugla af sex mögulegum. Frábær árangur hjá Huldu í hennar fyrsta móti á LET Access mótaröðinni, óskum henni til hamingju.


Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir voru einnig á meðal keppenda mótsins og náðu báðar í gegnum niðurskurð.
Andrea lék sína hringi á 79-72-69 höggum og endaði jöfn í 29. sæti mótsins. Eftir erfiðan fyrsta hring lék Andrea frábært golf og voru einungis fjórir kylfingar sem léku seinni tvo hringina betur en hún. Eftir skolla á fyrstu holu lokahringsins tapaði Andrea ekki höggi og fékk m.a. örn á sjöundu holunni. Frábær spilamennska.

Ragga lék hringi sína á 77-74-72 höggum, lauk leik á sjö yfir pari í heildina og endaði í 42. sæti mótsins. Holur 6, 7 og 11 reyndust henni dýrar, en Ragga spilaði þær ellefu yfir pari í mótinu. Restina af holunum lék hún fjóra undir pari á hringjunum þremur.

Öflug byrjun hjá okkar kylfingum á LET Access tímabilinu, við munum fylgjast áfram með þeirra gengi á næstu vikum á miðlum GSÍ.



