Heiða Rakel Rafnsdóttir, Golfklúbbi Mosfellsbæjar, sigrar sitt fyrsta háskólamót fyrir Grand Valley State University skólann í Bandaríkjunum.
Heiða var á meðal keppenda á UMSL Spring Invitational mótinu sem fór fram á Norwood Hills CC – East vellinum dagana 12.-13. apríl. Heiða endaði samtals á einu höggi undir pari í mótinu. Eftir frábæran fyrsta hring upp á þrjú högg undir par leiddi Heiða mótið með þremur höggum og hélt efsta sætinu allt til enda.
Heiða lék hringina þrjá á 68-75-69 höggum og varð einu höggi á undan Kamryn Shannon úr Ferris State.

Lið Heiðu í Grand Valley State University vann einnig liðakeppni mótsins með 7 högga mun eða á 23 höggum yfir pari samtals.
Flottur árangur hjá Heiðu Rakel í bandaríska háskólagolfinu. Óskum henni til hamingju með árangurinn
