Daníel Ísak Steinarsson, Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson eru allir á meðal efstu kylfinga Sand Valley Masters mótsins sem lýkur í dag. Mótið, sem fer fram á Sand Valley golfsvæðinu í Póllandi, er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu.
Stór hópur íslenskra afrekskylfinga var á meðal keppenda mótsins en þremeningarnir voru þeir einu sem náðu í gegnum niðurskurð.
Daníel og Hlynur eru jafnir í sjötta sæti mótsins á fjórum höggum undir pari. Daníel lék hringina tvo á 67-69 höggum og hefur einungis fengið tvo skolla í mótinu. Að fyrsta hring loknum var Daníel jafn í 10. sætinu en kom sér upp stöðutöfluna með öðrum góðum hring í gær.
Hlynur hefur leikið báða sína hringi á 68 höggum. Örfáir kylfingar hafa sótt fleiri fugla en Hlynur í mótinu, en GKG-ingurinn er með níu slíka á fyrstu 36 holunum.
Daníel og Hlynur leika lokahringinn í sama hollinu ásamt Svíanum Albin Tidén. Albin er efsti kylfingur stigalistans og hefur unnið tvö af fyrstu sex mótum tímabilsins.
Dagbjartur er jafn í 15. sæti mótsins á tveimur höggum undir pari. Hann hefur leikið báða hringina á 69 höggum og fengið á þeim sjö fugla og fimm skolla.

Hér má sjá skor allra íslensku kylfinganna (að tveimur hringjum loknum)
| Sæti | Skor | Kylfingur | Klúbbur |
| T6 | 67 – 69 (-4) | Daníel Ísak Steinarsson | GK |
| T6 | 68 – 68 (-4) | Hlynur Bergsson | GKG |
| T15 | 69 – 69 (-2) | Dagbjartur Sigurbrandsson | GR |
| MC | 74 – 68 (+2) | Logi Sigurðsson | GS |
| MC | 72 – 76 (+8) | Sigurður Arnar Garðarsson | GKG |
| MC | 71 – 79 (+10) | Aron Snær Júlíusson | GKG |
| MC | 75 – 76 (+11) | Skúli Gunnar Ágústsson | GKG |
Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Einnig er hægt að vinna sér inn þátttökurétt með því að vinna þrjú mót á sama tímabilinu. Haraldur Franklín Magnús leikur á HotelPlanner Tour, en sú mótaröð hefst aftur í maí.
