Haraldur Franklín Magnús.
Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, hóf leik fimmtudaginn 8. febrúar á atvinnumóti sem fram fer í Suður-Afríku.

Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.

Mótið heitir Bain’s Whisky Cape Town Open og fer það fram á Royal Cape Golf Club, í Höfðaborg.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Haraldur lék fyrsta hringinn á 3 höggum undir pari vallar eða 69 höggum. Hann hóf leik á 10. teig og fékk einn fugl (-1) og einn skolla (+1) á fyrri 9 holunum. Á síðari 9 holunum fékk GR-ingurinn 3 fugla (-1). Hann er í 23. sæti eftir fyrsta hringinn, þremur höggum á eftir efsta sætinu.

Haraldur Franklín lék í síðustu viku á SDC Open sem fram fór á Zebula golfsvæðinu við borgina Limpopo í Suður-Afríku. Þar komst Haraldur Franklín ekki í gegnum niðurskurðinn en mótið var einnig hluti af Challenge Tour.

Dagana 15.-18. febrúar keppir Haraldur Franklín á þriðja mótinu í röð á Challenge Tour atvinnumótaröðinni. Það mót heitir Dimension Data Pro-Am og fer það fram á Fancourt golfsvæðinu við borgina George í Suður-Afríku.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ