Haraldur Franklín Magnús, GR, er á meðal 10 efstu fyrir lokahringinn á Kaskáda Golf Challenge mótinu sem fram fer á Kaskáda Golf Resort, Brno, í Tékklandi. Mótið hófst fimmtudaginn 15. júní og eru leiknir fjórir keppnishringir á fjórum dögum.
Mótið er hluti af Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.
Mótið í Tékklandi er fjórða mót tímabilsins hjá Haraldi Franklín á mótaröðinni. Hann hefur leikið á 50 mótum á þessari mótaröð frá árinu 2018. Besti árangur hans er 2. sætið og hann hefur einnig endað í þriðja sæti.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á mótinu í Tékklandi:
Haraldur Franklín er í 9. sæti á -4 samtals. Hann hefur leikið hringina þrjá á 70-72-67 höggum. Efsti kylfingur mótsins er á -11 samtals.
![Screenshot-2023-06-17-at-5.12.04-PM - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2023/06/Screenshot-2023-06-17-at-5.12.04-PM-1024x416.png)
![00010HaraldurFranklin2023 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2023/05/00010HaraldurFranklin2023-1024x576.jpg)