Íslenski landsliðskylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur verið valinn, annað árið í röð, til að keppa með alþjóðlega úrvalsliðinu í Arnold Palmer Cup. Mótið er sterkasta áhugamannamót heims og mæta þangað 48 af bestu kylfingum bandaríska háskólagolfsins.
Mótið fer fram á Tralee golfvellinum á Írlandi dagana 3.-5. júlí og er leikfyrirkomulagið með sama sniði og í Ryder- og Solheim bikurunum. Lið Bandaríkjanna spilar þar við lið alþjóðlegra kylfinga en allir keppendur koma úr bandaríska háskólagolfinu. Liðin samanstanda af 12 körlum og 12 konum. Ljóst er að það sé mikið afrek að vera valinn í þetta mót, en liðin voru tilkynnt á Golf Channel seint í gærkvöldi.

Mótið er sterkasta áhugamannamót heims, en í fyrra fékk mótið 1000 stig í styrkleika af 1000 mögulegum á heimslista áhugakylfinga. Margir af bestu kylfingum heims hafa tekið þátt í mótinu. Þar má nefna Ludvig Åberg, Bryson DeChambeau, Luke Donald, Jon Rahm, Justin Thomas, Collin Morikawa, Rickie Fowler og svo mætti lengi telja. Enginn þeirra var þó valinn oftar en tvisvar sinnum í mótið. Gunnlaugur náði því mikla afreki að vera valinn í mótið á sínu fyrsta tímabili í háskólagolfinu, og gæti því skákað mörgum af stærstu nöfnum golfsins á næsta ári.
Alþjóðlega úrvalsliðið sigraði mótið í fyrra, 35-25, og var það einungis í fjórða skiptið frá upphafi sem liðið sigrar í Bandaríkjunum. Gunnlaugur lék flott golf í mótinu og skilaði liðinu tveimur vinningum, en einungis einn kylfingur fékk færri skolla en íslenski landsliðskylfingurinn.

Gunnlaugur, sem er fæddur 2005, stundar nám við LSU í Louisiana og hefur leikið frábært golf á sínum háskólaferli. Gunnlaugur hefur sigrað mót á báðum tímabilum sínum í Bandaríkjunum og margoft verið á meðal efstu kylfinga í sterkum mótum. Hann situr í dag í 11. sæti á heimslista áhugakylfinga. Það verður spennandi að fylgjast með Gunnlaugi og alþjóðlega liðinu reyna að sækja annan sigur sinn í röð, á Írlandi í júlí.

