GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Í vetur og vor eignuðumst við einn nýja alþjóðadómara og fjóra nýja landsdómara

Nicholas Anthony Cathcart-Jones sótti TARS (Tournament Administrators and Referees School) námskeið hjá R&A í Skotlandi og lauk „level-3“ prófi. Hann hefur fengið réttindi Alþjóðadómari hjá GSÍ.

Í vetur stóð dómaranefnd fyrir undirbúningsnámskeiði fyrir landsdómarapróf, sem haldið var í þessum mánuði. Alls sóttu 7 námskeiðið þar sem 4 náðu lágmarkseinkunn til að öðlast réttindi landsdómara í golfi.

Þeir sem hlutu réttindi landsdómara eru:

Eyþór Franzson Wechner    
Gestur Halldórsson  
Leifur Geir Hafsteinsson  
Úlfar Gíslason

GSÍ óskar þeim öllum hjartanlega til hamingju með nýju réttindin.

Hér má sjá lista fyrir alþjóða-, lands og héraðsdómara í golf.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ