Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, hefur á fimmtudaginn leik á U.S. Open, einu af fjórum risamótum golfsins. Með þátttöku sinni verður hann fyrsti íslenski kylfingurinn til að leika á U.S. Open karla.
Mótið fer fram dagana 18.-21. júní á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York. U.S. Open var fyrst haldið á vellinum árið 1896, en það var í annað skiptið sem mótið var leikið. Völlurinn er einn sá erfiðasti á PGA mótaröðinni. Á síðustu tólf árunum hefur sigurskorið í U.S. Open einungis einu sinni verið yfir pari, og var það á Shinnecock árið 2018. Þá stóð Brooks Koepka uppi sem sigurvegari á einu höggi yfir pari. Til að ná í gegnum niðurskurð það árið mátti spila fyrstu tvo hringina á átta höggum yfir pari og á fyrstu þremur hringjunum voru einungis fimm kylfingar sem léku hring undir pari.
Alls verða 156 kylfingar meðal keppenda, þar á meðal fremstu atvinnu- og áhugakylfingar heims.

Magnaður dagur í Ohio
Gunnlaugur tryggði sér þátttökurétt í mótinu með frábærri frammistöðu í lokaúrtökumóti sem fram fór á The Lakes Golf & Country Club í Ohio þann 8. júní. Þar léku kylfingar 36 holur á einum degi um fjögur laus sæti í risamótinu.
Gunnlaugur lék hringina tvo á 67 og 68 höggum, samtals níu höggum undir pari. Hann endaði í bráðabana og tryggði sér þar sæti í mótinu.
Æfingahringir með reynsluboltum
Undirbúningur Gunnlaugs fyrir mótið hefur gengið vel. Hann mætti snemma á svæðið og hefur verið að vinna í leikskipulagi með teymi sínu síðustu daga.
Hann lék fyrsta æfingahringinn sinn með Patrick Reed, sem hefur m.a. unnið Masters.
Í dag leikur hann æfingahring með danska Ryder Cup kylfingnum Nicolai Højgaard, sem er í dag 33. á heimslistanum.
Á miðvikudaginn verður hollið ekki síðra, en þar mun Gunnlaugur leika æfingahring með Scottie Scheffler, Sam Burns og fyrrum U.S. Open meistaranum Gary Woodland. Scottie er talinn líklegur um helgina, en með sigri hefur hann unnið öll fjögur risamótin.

Íslendingar á Shinnecock
Margir Íslendingar verða á vellinum um helgina. Það verður spennandi að fylgjast með okkar manni í sínu fyrsta risamóti, en hægt verður að nálgast alls kyns efni tengt mótinu á miðlum GSÍ í vikunni.



