GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Three male golfers stand together in front of a large blue archway sign for the R&A The Amateur Championship at a golf course.
Veigar, Tómas og Aron
Auglýsing

Þrír íslenskir kylfingar hefja leik á Opna breska áhugamannamótinu (The Amateur Championship) í dag. Mótið fer fram dagana 15.-20. júní á tveimur völlum í Englandi: Royal Liverpool og West Lancashire. Þar mætast 288 áhugakylfingar í einu sterkasta áhugamannamóti ársins.

Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér

Við eigum þrjá keppendur í móti ársins. Þeir eru Aron Emil Gunnarsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Veigar Heiðarsson. Tómas hefur leik klukkan 09:24 á West Lancashire, Veigar kemur þar næstur klukkan 10:52 á Royal Liverpool og síðastur er svo Aron klukkan 15:15 á West Lancashire

Á fyrstu tveimur hringjum mótsins er leikinn höggleikur. Allir kylfingar leika 18 holur á hvorum vellinum, annan hringinn í dag og hinn á morgun. Eftir þessa fyrstu tvo hringi komast 64 efstu kylfingarnir áfram í útsláttarhluta mótsins. Þar er leikin holukeppni sem hefst strax að öðrum hring loknum. Í henni mætast kylfingar einn á móti einum þar til einungis tveir standa eftir. Úrslitaviðureignin er sýnd um allan heim og verður þar leikin holukeppni yfir 36 holur. Fyrrum sigurvegarar mótsins eru meðal annars Bobby Jones, José María Olazábal, Sergio Garcia og Matteo Manassero.

Sigurvegari mótsins vinnur sér inn þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu, Opna bandaríska meistaramótinu sem og á Masters mótinu. Það er því til mikils að vinna.

Andri Þór Björnsson verður á svæðinu næstu daga og mun sýna frá okkar mönnum á Instagram og Facebook reikningum GSÍ. Hann segist spenntur fyrir mótinu:

Þetta er spennandi mót á tveimur virkilega flottum golfvöllum. Vellirnir eru links vellir og eru þar að leiðandi með fullt af pottbönkerum, upphækkuðum grínum og endalaust af landslagi í kringum flatirnar þá sérstaklega á Royal Liverpool. Strákarnir eru búnir að undirbúa sig vel fyrir mótið og gat ég ekki betur séð en að þeir værum meira en tilbúnir í slaginn næstu daga. 

Við óskum okkar kylfingum góðs gengis næstu dagana.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ