GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Gunnlaugur hefur brotið blað í íslenskri golfsögu
Auglýsing

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, hefur á fimmtudaginn leik á U.S. Open, einu af fjórum risamótum golfsins. Með þátttöku sinni verður hann fyrsti íslenski kylfingurinn til að leika á U.S. Open karla.

Rástímar fyrir fyrstu tvo hringi mótsins hafa verið birtir, en þar leikur Gunnlaugur með Taihei Sato frá Japan og Marcelo Rozo frá Kólumbíu. Báðir komust þeir inn í mótið í gegnum lokaúrtökumót, líkt og Gunnlaugur gerði í Ohio í síðustu viku.

Taihei Sato tekur þátt í U.S. Open í fyrsta sinn á ferlinum. Hann tryggði sér sætið í gegnum japanskt úrtökumót í maí þar sem hann lék á tíu höggum undir pari.

Sato hefur verið fastamaður á Japan Golf Tour mótaröðinni undanfarin ár. Hann vann sinn fyrsta sigur á mótaröðinni árið 2025 þegar hann sigraði á Fortinet Players Cup mótinu í Japan og hefur þrisvar verið á meðal tíu efstu á tímabilinu 2026. Þá á hann einnig sigur á PGA Tour China mótaröðinni, þar sem hann vann Chongqing Championship árið 2019 eftir bráðabana.

Marcelo Rozo frá Kólumbíu leikur einnig í sínu fyrsta U.S. Open móti eftir að hafa tryggt sér þátttökurétt í lokaúrtökumóti í Kanada.

Rozo varð atvinnumaður árið 2012 og hefur síðan leikið á PGA Tour, Korn Ferry Tour og PGA Tour Latinoamérica. Hann á að baki tíu atvinnusigra, þar af þrjá á PGA Tour Latinoamérica.

Þremeningarnir hefja leik kl. 14:20 að staðartíma (18:20 á Íslandi) á fimmtudaginn á fyrsta teig Shinnecock Hills. Á föstudaginn byrja þeir svo á tíunda teig kl. 08:25 að staðartíma (12:25 á Íslandi).

Spennandi verður að fylgjast með Gunnlaugi á næstu dögum, en Golfsambandið verður á staðnum og flytur fréttir, myndir og myndskeið frá þessu sögulega augnabliki á miðlum GSÍ.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ