Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd/ Tristan Jones.
Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili Hafnarfirði, keppir á Joburg Ladies Open – sem fram fer í samnefndri borg í Suður-Afríku. Leiknir verða þrír keppnishringirdagana 24.-26. mars 2022.

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit mótsins.

Guðrún Brá er á +5 samtals eftir 36 holur og er fyrir ofan niðurskurðarlínuna eins og er. Hún lék fyrsta hringinn á 77 höggum eða +4 og í dag lék hún á +1 eða 74 höggum. Þess má geta að Guðrún Brá fagnar 28 ára afmæli í dag – til hamingju.

Þrefaldi Íslandsmeistarinn í golfi er með fullan keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, líkt og undanfarin ár.

Á fjórða tug móta eru á keppnisdagskrá LET Evrópumótaraðarinnar.

Þetta er þriðja mótið á tímabilinu hjá Guðrúnu Brá sem endaði í 55. sæti á fyrsta móti tímabilsins, Magical Kenya Ladies Open, sem fram fór í Kenía í febrúar. Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn á öðru móti ársins – Aramco Saudi Ladies International mótinu sem fram fór dagana 17.-20. mars í Sádí-Arabíu.

Keppnisdagskrá LET 2022 er hér í heild sinni:

Guðrún Brá gerðist atvinnukylfingur árið 2018. Hún er fjórða konan frá Íslandi sem tryggir sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Ólöf María Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir hafa einnig verið með keppnisétt á LET.

Alls lék Guðrún Brá á 16 mótum á LET Evrópumótaröðinni á síðasta tímabili. Besti árangur hennar á árinu 2021 var 12. sæti. Hún varð Íslandsmeistari í holukeppni 2020 á Þorláksvelli.

Á heimslistanum hefur Guðrún Brá farið upp um tæplega 255 sæti á árinu 2021 en hún er í sæti nr. 620 á heimslistanum.

Guðrún Brá lék á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar, annað árið í röð. Guðrún Brá endaði í 75. sæti á stigalistanum á LET Evrópumótaröðinni en árið 2020 endaði hún í sæti nr. 127 á stigalistanum.

Það eru mörg ferðalög framunda á þessu ári hjá Guðrúnu Brá líkt og undanfarin ár. Mótin á LET fara fram í fimm mismunandi heimsálfum, Afríku, Asíu, Eyjaálfu, Evrópu og Norður-Ameríku.

Afríka (3 mót)
Kenía (1 mót)
Suður-Afríka (2 mót)

Asía (5 mót)
Sádí-Arabía (2 mót)
Indland
Dubaí
Eitt mót fer fram Asíu þar sem á eftir að staðfesta keppnisstað.

Eyjaálfa (2 mót)
Ástralía, (2 mót)

Evrópa (20 mót)
Spánn (4 mót)
Frakkland (3 mót)
Belgía,
Svíþjóð (2 mót)
England
Tékkland,
Holland,
Skotland (2 mót)
Norður-Írland
Finnland
Sviss
Írland
Eitt mót fer fram Evrópu þar sem á eftir að staðfesta keppnisstað.

Norður-Ameríka (1 mót)
Bandaríkin.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ