Guðmundur Ágúst
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, hóf leik í morgun á D+D REAL Czech Challenge 2021 mótinu sem er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.

Mótaröðin er sú næst sterkasta hjá atvinnukylfingum í Evrópu. Mótið fer fram á Golf & Spa Kunětická Hora, Dříteč, í Tékklandi.

Staðan er uppfærð hér:

Guðmundur lék vel á síðasta móti sem fram fór á Írlandi en þar endaði hann í 12.-19. sæti. Besti árangur Guðmundar á Áskorendamótaröðinni er 4. sæti.

Hann hefur nú leikið á þremur mótum á þessu tímabili. Eins og staðan er núna er Guðmundur Ágúst í 67. sæti á stigalista Áskorendamótaraðarinnar.

Á síðasta ári var Guðmundur Ágúst á meðals 45 efstu sem fengu tækifæri til þess að keppa um sigurinn á stigamótaröðinni á lokamóti tímabilsins.

Guðmundur er í 608 sæti heimslista atvinnukylfinga – en hann fór úr sæti nr. 662. Besti árangur hans á heimslistanum er 508. sæti.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ