Opna breska áhugamannamótið í kvennaflokki 2021 fer fram dagana 7.-12. júní en mótið fer nú fram í 118. sinn og verður leikið á Kilmarnock, Barassie, í Skotlandi.
Mótið er hluti af keppnisdagskrá R&A í Skotlandi og sigurvegarinn fær tækifæri til þess að leika á risamótum á atvinnumótaröðum í kvennaflokki.
Þrír íslenskir kylfingar eru á meðal keppenda, Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – Hulda Clara Gestsdóttir, GKG og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR. Opna breska áhugamannamótið er eins og áður segir eitt sterkasta áhugamannamótið í kvennaflokki sem fram fer árlega en keppendur eru alls 144.
Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að leiknar eru 36 holur með höggleiksfyrirkomulagi – 64 efstu kylfingarnir komast áfram í næstu umferð þar sem að holukeppni tekur við. Í holukeppninni eru leiknar 18 holur í hverri umferð en úrslitaleikurinn er 36 holur.
Sigurvegarinn fær keppnisrétt á fjórum risamótum hjá atvinnukylfingum, AIG mótinu, Opna bandaríska meistaramótinu, Evian meistaramótinu og Augusta National meistaramótinu.
![IMG_4537-1 - Golfsamband Íslands Opna breska áhugamannamótið](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2021/06/IMG_4537-1-1024x731.jpg)
![IMG_6305 - Golfsamband Íslands Opna breska áhugamannamótið](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2021/06/IMG_6305-731x1024.jpg)
![Íslandsmót-holukeppni-2020-Akureyri-431 - Golfsamband Íslands Opna breska áhugamannamótið](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2021/06/Íslandsmót-holukeppni-2020-Akureyri-431-1024x886.jpg)