Næsta Golf 14 mót sumarsins fer fram þriðjudaginn 14. júlí. Viðburðurinn verður haldinn á tveimur stöðum, annars vegar verður Bakkakotsmótið hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og hins vegar verður Sveinskotsmótið hjá Golfklúbbnum Keili.
Bakkakotsmótið fer fram á Bakkakotsvelli og er ætlað kylfingum á aldrinum 11-14 ára. Keppt er í flokkum 11-12 ára og 13-14 ára drengja og stúlkna. Sveinskotsmótið fer fram hjá Keili og er ætlað yngstu kylfingunum, þar sem keppt verður í flokkum 8 ára og yngri og 9-10 ára drengja og stúlkna.

Leikinn verður höggleikur án forgjafar og ræst verður út með shotgun fyrirkomulagi eftir flokkum. Að leik loknum verður verðlaunaafhending og veitingar fyrir keppendur.
Skráning fer fram á golf.is og lýkur sunnudaginn 12. júlí kl. 23:59. Þátttökugjald í mótin er 3.900 krónur.
Hér er skráningarhlekkur í Bakkakotsmótið fyrir 11-14 ára
Hér má finna allar upplýsingar og skráningu í Sveinskotsmótið fyrir 10 ára og yngri
Bakkakotsmótið
Keppnisskilmálar – Golf 14 – Bakkakotsmótið
Golfklúbbi Mosfellsbæjar – Bakkakot 14. júlí 2026
Leikfyrirkomulag
Leikinn er höggleikur án forgjafar. Allir kylfingar leika 9 holur og eftir hring er pylsuveisla og verðlaunaafhending. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ en þó er hámarksfjöldi högga á hverri holu 9 högg.
Áætlaðir rástímar
Shotgun 9:00
Shotgun 13:00 (ef keppendafjöldi fer yfir 44)*
* Skipt verður í 2 shotgun eftir aldri ef þátttaka fer yfir 44 kylfinga, 11-12 ára verða kl 9:00 og 13-14 ára verða kl 13:00
Rástímar og ráshópar
Ráshópar verða birtir á golfbox á mánudag fyrir mót og fá keppendur tölvupóst. Ræst verður með shotgun fyrirkomulagi (allir byrja á sama tíma á mismunandi upphafsteig).
Þátttökuréttur
Allir kylfingar á aldrinum 11-14 ára hafa þátttökurétt í mótinu og er leikið í fjórum flokkum:
13-14 ára drengir
13-14 ára stúlkur
11-12 ára drengir
11-12 ára stúlkur
Fjöldi þátttakenda
Mest 88 keppendur
Skráning og þátttökugjald
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 sunnudaginn 12. júlí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á dagur@golfmos.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.
Allir keppendur – kr. 3.900,-
Æfingahringur
Ekki er innifalinn æfingahringur í mótsgjaldi. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma en vallargjald fyrir ungmenni er einungis 2000 kr.
Teigar
13-14 ára drengir – gulir
13-14 ára stúlkur – rauðir
11-12 ára drengir – rauðir
11-12 ára stúlkur – rauðir
Kylfuberar
Kylfuberar eru leyfðir en einungis til að draga, ýta eða halda á golfsetti (tilsögn sem tengist golfleiknum er óheimilaður).
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.
Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending og hamborgaraveisla verður haldin að loknum leik hvers aldursflokks fyrir sig.
Mótsstjórn
Dagur Ebenezersson, Katrín Dögg Hilmarsdóttir, Andri Ágústsson, Karl Ómar Karlsson
Sveinskotsmótið
Keppnisskilmálar – Golf 14 – Sveinskotsmótið
Golfklúbburinn Keilir – 14. júlí 2026
Leikfyrirkomulag
Leikinn er höggleikur án forgjafar. Allir kylfingar leika 9 holur og eftir hring er verðlaunaafhending og veitingar. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ en þó er hámarksfjöldi högga á hverri holu 9 högg.
Áætlaðir rástímar
Shotgun 9:00
Shotgun 12:00 (ef keppendafjöldi fer yfir 44)*
* Skipt verður í 2 shotgun eftir aldri ef þátttaka fer yfir 44 kylfinga, 8 ára og yngri verða kl 9:00 og 9-10 ára verða kl 12:00
Rástímar og ráshópar
Ráshópar verða birtir á golfbox á mánudag fyrir mót og fá keppendur tölvupóst. Ræst verður með shotgun fyrirkomulagi (allir byrja á sama tíma á mismunandi upphafsteig).
Þátttökuréttur
Allir kylfingar á aldrinum 11-14 ára hafa þátttökurétt í mótinu og er leikið í fjórum flokkum:
8 ára og yngri drengir
8 ára og yngri stúlkur
9-10 ára drengir
9-10 ára stúlkur
Fjöldi þátttakenda
Mest 88 keppendur
Skráning og þátttökugjald
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 sunnudaginn 12. júlí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á birgir@keilir.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.
Allir keppendur – kr. 3.900,-
Æfingahringur
Ekki er innifalinn æfingahringur í mótsgjaldi. Til að bóka æfingahring þarf að hafa samband við Golfverslun Keilis.
Teigar
8 ára og yngri drengir – Teigar 12
8 ára og yngri stúlkur – Teigar 12
9 – 10 ára drengir – Teigar 20
9 – 10 ára stúlkur – Teigar 20
Kylfuberar
Kylfuberar eru leyfðir en einungis til að draga, ýta eða halda á golfsetti og meiga hjálpa krökkunum með leikinn.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.
Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending verður haldin að loknum leik hvers aldursflokks fyrir sig með veitingum.
Mótsstjórn
Birgir Björn Magnússon, Axel Bóasson og Vikar Jónasson




