GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Evrópumót kvenna, karla, stúlkna og pilta hefjast þriðjudaginn 7. júlí. Ísland er með lið í öllum fjórum mótunum og leika öll íslensku landsliðin í efstu deild.

Evrópumót stúlkna fer fram í Sviss, þar sem íslenska stúlknalandsliðið mætir sterkustu sveitum Evrópu á Golf & Country Club Zürich í Zumikon.

Fyrirkomulag mótsins er tveggja daga höggleikur og þriggja daga holukeppni. Leikinn er 36 holu höggleikur fyrstu tvo keppnisdagana og fimm af sex skorunum liðsins telja hvorn dag. Að loknum höggleiknum tekur við holukeppni þar sem leikið er um sæti í mótinu.

Evrópumót stúlkna 7.-11. júlí í Sviss

Smelltu hér fyrir stöðuna hjá stúlknalandsliðinu:

Sveit Íslands skipa:

Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR
Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA
Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG
Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG
Lilja Maren Jónsdóttir, GA
Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG

Þjálfari: Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Sjúkraþjálfari: Alexandra Eir Grétarsdóttir

Mótið er ætlað stúlkum 18 ára og yngri og hefur verið haldið frá árinu 1991. Alls eru 19 þjóðir skráðar til leiks að þessu sinni og því bíður íslenska liðsins krefjandi og spennandi verkefni í Sviss.

Golf & Country Club Zürich er staðsettur í Zumikon, skammt frá Zürich. Völlurinn og umhverfið bjóða upp á glæsilega umgjörð fyrir mótið, þar sem bestu stúlknalandslið Evrópu munu etja kappi.

Við munum fylgjast með gengi okkar kylfinga á öllum helstu miðlum GSÍ.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ