Spil erlendra kylfinga á íslenskum golfvöllum hefur farið vel af stað í sumar samkvæmt samantekt Golf Iceland á tölum frá golfklúbbum til loka júní 2026.
Samantektin byggir á upplýsingum frá flestum þeirra golfvalla sem halda sérstaklega utan um spil erlendra gesta. Nokkrir klúbbar hafa gert slíkar talningar um árabil og gefa tölurnar því ágæta mynd af þróuninni, þó þær nái ekki yfir alla golfvelli landsins.
Hjá þeim klúbbum sem hafa gert reglulegar talningar mælist heildaraukning í spili erlendra gesta um 15% miðað við sama tímabil í fyrra. Samkvæmt tölunum er þetta jafnframt mesti fjöldi erlendra gesta til loka júní frá upphafi talninga hjá þessum klúbbum.
Þróunin er þó misjöfn eftir klúbbum og ræðst af mörgum þáttum. Þar má nefna veður, fjölda erlendra ferðamanna til landsins, komur skemmtiferðaskipa til einstakra hafna, sýnileika klúbba gagnvart erlendum kylfingum og ekki síst framboð rástíma.

Golf Iceland hefur undanfarin ár unnið að því að kynna íslenska golfvelli fyrir erlendum kylfingum og ferðaþjónustuaðilum. Í fyrri samantektum hefur komið fram að golf sé orðið sýnilegri hluti af afþreyingu erlendra ferðamanna hér á landi. Í könnun Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna var til að mynda áætlað að um 11.000 erlendir ferðamenn hefðu keypt golf sem afþreyingu sumarið 2023.
Tekjur af erlendum gestum skipta máli fyrir rekstur golfklúbba. Samhliða því er ljóst að aukin þátttaka íslenskra kylfinga og vaxandi eftirspurn eftir rástímum kallar á áframhaldandi umræðu um uppbyggingu og aðgengi að golfvöllum um land allt.




