Auglýsing

Fjórir ungir og efnilegir kylfingar úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar tóku nýverið þátt á móti á Global Junior Golf mótaröðinni. Mótið fór á Flamingos Golf vellinum á Villa Padierna á Malaga á Spáni.

Kylfingarnir eru: Arnar Daði Svavarsson, Arnar Heimir Gestsson, Benjamín Snær Valgarðsson og Stefán Jökull Bragason.

Arnar Daði, sem er fæddur árið 2009, og er því á 15. ári, lék í U-18 ára flokki pilta og þar var hann í efsta sæti fyrstu tvo dagana – og endaði í þriðja sæti. Hann lék hringina á 71-70 og 76 höggum.

Benjamín, Stefán og Arnar Heimir léku í piltaflokki U14 ára og þar enduðu þeir í 6., 7. og 8. sæti

Lokaúrslit mótsins eru hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ