Auglýsing

Helsta áherslubreytingin á GSÍ mótaröðinni 2024 er að mótin sem telja á stigalista GSÍ verða fjögur talsins. Mótin eru Korpubikarinn, Hvaleyrarbikarinn, Íslandsmótið í holukeppni og Íslandsmótið í golfi. Lagt er upp með að Korpu- og Hvaleyrarbikarinn verði árleg mót á mótaröðinni. 

Áhersla er lögð á að mótin á GSÍ mótaröðinni skarist sem minnst við sterk alþjóðleg áhugamannamót sem eykur líkurnar á því að okkar bestu áhugakylfingar geti tekið þátt í okkar stærstu mótum hérlendis. 

Athygli er vakin á því að karlar og konur keppa ekki á sama tíma í Íslandsmótinu í  holukeppni. Konurnar keppa í Mosfellsbæ um miðjan júní og karlarnir á Akranesi viku síðar. Með þessari breytingu geta fleiri keppendur tekið þátt þar sem 36 holur höggleikur sker úr um hvaða 16 keppendur keppa í útsláttarkeppni í holukeppni um Íslansmeistaratitilinn. Íslandsmótið í golfi fer fram á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja dagana 18.-21. júlí. 

Að auki verða haldin tvö vormót og eitt haustmót en þessi mót eru með meiri sveigjanleika en mótin á GSÍ mótaröðinni. Vor- og haustmótin telja ekki á stigalista GSÍ og telja ekki á heimslista áhugamanna. Mótin bjóða upp á fjölbreytileika hvað varðar fjölda þátttakenda, fjölda hola, leikfyrirkomulag o.s.fr. Þátttökugjald í mótin verða hærri og munu þeir kylfingar sem enda á meðal 25% efstu kylfinganna hljóta verðlaunafé. Eitt af markmiðunum með mótunum er að höfða til fleiri kylfinga sem hafa ekki tekið virkan þátt í mótahaldi afrekskylfinga undanfarin ár. 

Jafnframt verða tvö mót haldin eingöngu fyrir kylfinga á aldrinum 19-23 ára þar sem umgjörð mótanna verður í lágmarki. Meginmarkmið mótanna sem bera nöfnin heimslistamót er að telja til stiga á heimslista áhugamanna. 

Í hlaðvarpsþætti GSÍ fara Kristín María Þorsteinsdóttir mótastjóri og Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri yfir helstu áherslurnar á GSÍ mótaröðinni. Þátturinn er í heild sinni hér fyrir neðan. 

Dagsetning Mót Klúbbur  Hvar á landinu? 
19.-20. maí Vormót* GS Reykjanesbær
25.-26. maí Vormót* NK Seltjarnarnes
1.-2. júní  Korpubikarinn GR Reykjavík
14.-16. júní Íslandsmótið í holukeppni – konur GM Mosfellsbær
22.-24. júní  Íslandsmótið í holukeppni – karlar GL Akranes
18.-21. júlí  Íslandsmótið í golfi GS Reykjanesbær
10.-11. ágúst  Hvaleyrarbikarinn  GK Hafnarfjörður
31.ágúst – 1. sept. Haustmót* Ekki ákveðið Ekki ákveðið

*Gildir ekki á WAGR og telur ekki á stigalista GSÍ. 

Dagsetning Mót Klúbbur  Hvar á landinu? 
10.-11. júní  Heimslistamót GKB Kiðjaberg
15.-16. ágúst Heimslistamót Ekki ákveðið  Ekki ákveðið



Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ