Auglýsing

Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 50 ára og eldri tekur þátt á Evrópumótinu sem fram fer á Sedin golfsvæðinu í Slóvakíu.

Um er að ræða liðakeppni þar sem að keppt er í höggleik fyrstu tvo keppnisdagana þar sem að fimm bestu skorin telja.

Að því loknu tekur við holukeppni þar sem að liðunum er skipt upp í riðla eftir árangri þeirra í höggleikskeppninni. Í holukeppninni er einn fjórmenningsleikur og fjórir tvímenningsleikir.

Landslið Íslands í karlaflokki +50 er þannig skipað:

Frans Páll Sigurðsson, GR 
Gunnar Páll Þórisson, GKG 
Halldór Sævar Birgisson, GHH
Ólafur Hreinn Jóhannesson, GSE
Sigurbjörn Þorgeirsson, GFB 
Tryggvi Valtýr Traustason, GÖ 

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.

Alls eru 23 þjóðir sem taka þátt á EM 2021 í liðakeppni +50 í karlaflokki.

Austurríki
Belgía
Tékkland
Danmörk
England
Eistland
Finnland
Frakkland
Þýskaland
Ísland
Írland
Ítalía
Litháen
Lúxemborg
Holland
Noregur
Pólland
Skotland
Slóvakía
Slóvenía
Spánn
Svíþjóð
Sviss

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ