Auglýsing

Fórst þú holu í höggi á árinu 2021?

Þeir kylfingar sem hafa farið holu í höggi á árinu 2021 og skráð afrekið hjá Einherjaklúbbnum eiga möguleika á því að vinna gjafabréf frá VITA og Mercedes-Benz bifreið.

Þann 4. september 2021 geta þeir sem hafa skráð holu í höggi á tímabilinu 1. september 2020-31. ágúst 2021 mætt á Nesvöllinn.

Þar munu allir fá eitt högg á holu 2 og sá sem er næstur holu vinnur gjafabréf frá VITA. Fyrir holu í höggi í þessari einu tilraun fær viðkomandi glæsilega Mercedes-Benz tengiltvinn bifreið frá Öskju til eignar.

Skráning fer fram á Golfbox á tímabilinu 29. ágúst-3. september. – Smelltu hér til að skrá þig.

Dagskráin er eftirfarandi:

Kl. 09.00 – 09.30:
Mæting þátttakenda og skal tilkynna mætingu á skrifstofu klúbbsins, draga númer um hvar þeir verða í röðinni og fá afhenta teiggjöf frá tryggingafélaginu Verði.

ATH: Frítt verður fyrir þátttakendur mótsins á æfingasvæði Nesklúbbsins á milli kl. 09.00 og 09.30

Kl. 09.40:
Keppendur boðnir velkomnir og mótsreglur útskýrðar

Kl. 09.50:
Keppendur ganga út á 2. teig

Kl. 10.00: Fyrsti keppandi slær 

Leikreglur verða útskýrðar nákvæmlega á staðnum en gott er fyrir þátttakendur að vita að:

  • Allir þátttakendur fá eitt högg óháð því hversu oft þeir hafa farið holu í höggi á árinu.
  • Verði tveir eða fleiri nákvæmlega jafn langt frá þegar að allir hafa lokið keppni þeir sem næst voru slá aftur til að úrskurða um sigurvegara.
  • Fari tveir eða fleiri holu í höggi munu þeir slá aftur til að úrskurða um sigurvegara og þ.m.t. hver fær Mercedes-Benz bifreið frá Öskju.
  • Nauðsynlegt er að hafa skráð afrekið hjá Einherjaklúbbnum til þess að hafa þátttökurétt í mótinu.
  • Það er frítt í mótið, þ.e. þátttökugjald er kr. 0

Hlökkum til að sjá ykkur á Nesvellinum þann 4. september

Skráning fer fram á Golfbox á tímabilinu 29. ágúst-3. september. – Smelltu hér til að skrá þig.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ