/

Deildu:

Bjarni Þór Hannesson og Kristinn V. Jóhannsson.
Auglýsing

SÍGÍ (Samtök íslenskra golf- og íþróttavallastarfsmanna)kunngerðu nýlega um val á golfvallar- og knattspyrnuvallastjórum ársins, þetta er í þriðja sinn sem valið fer fram.  Þar velja landsdómarar, formenn golfklúbba innan GSÍ og afrekskylfingar þann golfvallarstjóra landsins sem þeim þótti standa uppúr á árinu.

Í tilkynningu frá Golfklúbbnum Keili kemur fram að Bjarni Þór Hannesson hafi verið kjörinn golfvallarstjóri ársins 2015.

„Í flokki golfvallarstjóra hlaut vallarstjóri okkar Keilismanna, Bjarni Þór Hannesson titilinn Vallarstjóri ársins.  Kosningin að þessu sinni var nokkuð afgerandi og ljóst að kylfingum þótti ástand Hvaleyrarvallar með besta móti þrátt fyrir erfitt tíðarfar.

Þetta er í annað sinn sem Keilir hlýtur titilinn, en Daniel Harley varð þess heiðurs aðnjótandi að krækja í bikarinn fyrsta árið sem valið fór fram. Á síðasta ári hlaut Ágúst Jensson nafnbótina fyrir Korpúlfsstaðarvöll, en Íslandsmótið í golfi fór þar fram sumarið 2013.  Hvaleyrarvöllur varð þó í öðru sæti það árið, svo að árangurinn var ekki slæmur.

Við óskum Bjarna og öllum starfsmönnum vallarins til hamingju með árangurinn.  Svona titlar vinnast ekki út á einstaklingsframtakið.  Það voru 19 starfsmenn sem komu nálægt viðhaldi Hvaleyrarvallar á síðasta ári.  Það eiga því margir sinn hluti í nafnbótinni Vallastjóri ársins 2014.“

Golfsambandið tekur undir með Keilismönnum og óskar Bjarna Þór og öllum starfsmönnum vallarins innilega til hamingju.

author avatar
Sigurður Elvar

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ