Auglýsing

Þrír keppendur frá Íslandi taka þátt á Thomas Bjørn Samsø Classic mótinu sem fram fer á Samsø golfvellinum í Svíþjóð.

Mótið hófst í dag miðvikudaginn 7. júní og eru leiknir þrír keppnishringir á þremur dögum. Lokahringurinn fer fram föstudaginn 9. júní.

Thomas Bjørn Samsø Classic mótið er hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni. – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Danmörku.

Axel Bóasson er efstur þessa stundina eftir tvo hringi af alls þremur. Hann er á -12 samtals en í dag lék hann á 63 höggum eða -9, þar sem hann fékk sjö fugla (-1) og einn örn (-2).

Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Íslensku keppendurnir eru Andri Þór Björnsson, GR, Axel Bóasson, GK og Bjarki Pétursson, GKG.

Á stigalistanum er Axel í 8. sæti en hann hefur leikið á alls níu mótum á þessu tímabili, Bjarki hefur leikið á sjö mótum og er í 28. sæti á stigalistanum, Andri Þór hefur leikið á átta mótum og er í 75. sæti á stigalistanum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ