Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, og Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, sigruðu á Leirumótinu sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru 2.-4. júní. Þetta var fyrsta mót tímabilsins á stigamótaröð GSÍ 2023.

Golfklúbbur Suðurnesja var framkvæmdaraðili mótsins – sem telur til stiga á heimslista áhugakylfinga en bæði áhugamenn og atvinnumenn höfðu keppnisrétt á þessu móti.

Alls tóku 124 keppendur þátt sem er talsverð fjölgun frá því í fyrra, 92 karlar og 32 konur.

Efstu kylfingar í kvennaflokki:

Lokastaðan er hér:

1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, 225 högg (+9) (74-76-75).
2. Berglind Björnsdóttir, GR, 234 högg (+18) (74-79-81).
3. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, 235 högg (+19) (76-80-79).
4.-5. Anna Júlía Ólafsdóttir, GKG, 238 högg (+22) (79-80-79).
4.-5. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, 238 högg (+22) (75-82-81).
6.-7. Eva Fanney Matthíasdóttir,GKG, 240 högg (+24) (83-78-79).
6.-7. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA, 240 högg (+24) (78-80-82).
8. Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, 241 högg (+25) (76-86-79).
9. Saga Traustadóttir, GKG, 242 högg (+26) (76-85-81).
10.-11. Eva Kristinsdóttir 243 högg (+27)(81-81-81).
10.-11. Helga Signý Pálsdóttir, GR, 243 högg (+27)(76-81-86).

Efstu kylfingar í karlaflokki:

Lokastaðan er hér:

1. Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, 213 högg (-3) (72-69-72).
2. Birgir Björn Magnússon, GK, 214 högg (-2) (72-69-73).
3. Kristján Þór Einarsson, GM, 217 högg (+1) (69-71-77).
4. Logi Sigurðsson, GS, 220 högg (+4) (75-71-74).
5.-6. Kristófer Karl Karlsson, GM, 221 högg (+5) (70-78-73).
5.-6. Jóhannes Guðmundsson, GR, 221 högg (+5) (70-75-76).
7.-11. Heiðar Davíð Bragason, GA, 222 högg (+6) (72-78-72).
7.-11. Ragnar Már Garðarsson, GKG (+6) 222 högg (74-76-72).
7.-11. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, 222 högg (+6) (71-76-75).
7.-11. Kristófer Orri Þórðarson, GKG, 222 högg (+6) (73-74-75).
7.-11. Elvar Már Kristinsson, GR, 222 högg (+6) (69-77-76).

Keppendur komu frá 14 klúbbum og níu klúbbar vorumeð keppendur í báðum flokkum, kvenna – og karla.

GKG, GR og GM voru samtals með tæplega 60% af öllum keppendum mótsins.

Þriðji hver keppandi í kvennaflokki var frá Golfklúbbi Mosfellsbæjar sem var með 10 keppendur af alls 32.

Smelltu hér fyrir stöðuna í mótinu.

Hólmsvöllur í Leiru kemur vel undan vetri og gáfu keppendur vellinum góða dóma eftir mótið. Starfsfólk GS lagði mikla vinnu í að gera völlinn eins góðan hægt er – og lögðu margir hönd á plóginn í því verkefni.


Karen Guðnadóttir, GS, á vallarmetið á bláum teigum sem er 68 högg (-4) og var sett þann 7. júlí 2016.

Vallarmetið af hvítum teigum er 65 högg (-7) og það eru tveir kylfingar sem deila þeim árangri.

Gunnar Þór Jóhannsson, GS, 65 högg (-7) 30. júní 2001 og Axel Bóasson, GK, 65 högg (-7) 21. júlí 2011.

Klúbbur KarlarKonurSamtals
Golfklúbbur Kópvogs og Garðabæjar, GKG18826
Golfklúbbur Reykjavíkur, GR17724
Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM131023
Golfklúbbur Suðurnesja, GS9110
Golfklúbbur Selfoss, GOS718
Golfklúbburinn Oddur, GO628
Golfklúbburinn Keilir, GK617
Golfklúbbur Akureyrar, GA516
Nesklúbburinn, NK505
Golfklúbburinn Leynir, GL213
Golfklúbbur Vestmannaeyja, GV101
101
GFH101
GEY101

Meðalaldur – yngst og elst

  • Meðalaldur keppenda í kvennaflokki er 21 ár og 25 ár í karlaflokki.
  • Yngsti keppandinn í karlaflokki er Hjalti Kristján Hjaltason, GM, en hann er fæddur árið 2010 og er því 13 ára.
  • Hjalti Pálmason, GM, faðir Hjalta, er elsti keppandinn í mótinu en hann er 54 ára.
  • Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, systir Hjalta Kristjáns, er næst yngsti keppandinn í kvennaflokki en hún er fædd árið 2008 og er 15 ára.
  • Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG, er yngsti keppandinn í kvennaflokki en hún er fædd árið 2009 og er því 14 ára.
  • Elstu keppendurnir í kvenna – og karlaflokki eru bæði úr GM, en Hekla Ingunn Daðadóttir er elst í kvennaflokki, 46 ára.

Fjölskyldumót

  • Það eru ýmsar fjölskyldutengingar hjá keppendum í Leiru-mótinu.
  • Eins og áður segir er Hjalti Pálmason að keppa á sama móti og dóttir hans og sonur.
  • Hekla Ingunn Daðadóttir er einnig að upplifa þetta mót ásamt syni sínum, Andra Má Guðmundssyni, sem er fæddur árið 2001.
  • Heiðar Davíð Bragason, íþróttastjóri Golfklúbbs Akureyrar, sem fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli á Hólmsvelli í Leiru árið 2005, er á meðal keppenda líkt og sonur hans, Veigar Heiðarsson. Veigar er fæddur árið 2006 og verður 17 ára í desember en faðir hans er fæddur árið 1977.
  • Systkinin Helga Signý Pálsdóttir og Böðvar Bragi Pálsson, bæði úr GR, eru á meðal keppenda en þau sigruðu bæði í flokki 17-21 árs á unglingamótaröðinni í síðustu viku. Systkinin Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, og Bjarni Þór Lúðvíksson, NK, eru með líkt og bræðurnir úr GKG, þeir Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson. Tvíbuarsysturnar úr GM Auður Bergrún Snorradóttir og Birna Rut Snorradóttir eru á meðal keppenda.

Leikfyrirkomulag

Höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Niðurskurður verður eftir annan hring en þá komast áfram 70% af fjölda keppenda úr hvorum flokki. Ef keppendur eru jafnir í neðstu sætum ofan niðurskurðarlínu skulu þeir báðir/allir halda áfram. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót karla og kvenna og móta- og keppendareglum GSÍ.

Keppnisskilmálar.

Keppandalistinn er hér fyrir neðan, raðað eftir forgjöf.

NafnKlúbburForgjöfAldur
Ragnhildur KristinsdóttirGR-3.826
Heiðrún Anna HlynsdóttirGOS-2.323
Jóhanna Lea LúðvíksdóttirGR-1.921
Berglind BjörnsdóttirGR-1.131
Andrea Ýr ÁsmundsdóttirGA-0.721
Anna Júlía ÓlafsdóttirGKG-0.323
Saga TraustadóttirGKG-0.125
Helga Signý PálsdóttirGR0.617
Kristín Sól GuðmundsdóttirGM121
Berglind Erla BaldursdóttirGM1.618
Fjóla Margrét ViðarsdóttirGS2.116
Bjarney Ósk HarðardóttirGR2.419
Ásdís ValtýsdóttirGR2.421
Bryndís María RagnarsdóttirGK2.717
Karen Lind StefánsdóttirGKG2.716
Katrín Sól DavíðsdóttirGM2.916
Eva KristinsdóttirGM2.919
Pamela Ósk HjaltadóttirGM3.415
Elísabet ÓlafsdóttirGKG3.416
Heiða Rakel RafnsdóttirGM4.117
Hrafnhildur GuðjónsdóttirGO4.328
Auður Bergrún SnorradóttirGM4.416
Gunnhildur Hekla GunnarsdóttirGKG518
Hekla Ingunn DaðadóttirGM5.146
Auður Björt SkúladóttirGO5.318
Elsa Maren SteinarsdóttirGL5.332
Birna Rut SnorradóttirGM5.516
Auður SigmundsdóttirGR5.719
Gabríella Neema StefánsdóttirGM5.816
Elísabet Sunna SchevingGKG5.916
Íris Lorange KáradóttirGKG6.223
Eva Fanney MatthíasdóttirGKG7.414
NafnKlúbburForgjöfAldur
Kristófer Orri ÞórðarsonGKG-4.226
Sigurður Arnar GarðarssonGKG-4.121
Dagbjartur SigurbrandssonGR-4.121
Arnór Ingi FinnbjörnssonGR-3.934
Hlynur BergssonGKG-3.625
Kristján Þór EinarssonGM-3.635
Aron Emil GunnarssonGOS-3.520
Böðvar Bragi PálssonGR-3.522
Sigurður Bjarki BlumensteinGR-3.322
Jóhannes GuðmundssonGR-3.225
Egill Ragnar GunnarssonGKG-2.922
Kristófer Karl KarlssonGM-2.923
Daníel Ísak SteinarssonGK-2.927
Birgir Björn MagnússonGK-2.626
Sverrir HaraldssonGM-2.523
Tómas Eiríksson HjaltestedGR-2.321
Hjalti Hlíðberg JónassonGKG-2.221
Elvar Már KristinssonGR-2.223
Lárus Ingi AntonssonGA-2.021
Viktor Ingi EinarssonGR-1.823
Lárus Garðar LongGV-1.824
Andri Már ÓskarssonGOS-1.632
Jóhann Frank HalldórssonGR-1.519
Logi SigurðssonGS-1.521
Pétur Þór JaideeGS-1.521
Svanberg Addi StefánssonGK-1.434
Bjarki Snær HalldórssonGK-1.321
Veigar HeiðarssonGA-0.917
Pétur Sigurdór PálssonGOS-0.921
Guðmundur Rúnar HallgrímssonGS-0.848
Heiðar Davíð BragasonGA-0.720
Ragnar Már GarðarssonGKG-0.728
Björn Viktor ViktorssonGL-0.746
Ingi Þór ÓlafsonGM-0.422
Björgvin SigmundssonGS-0.338
Eyþór Hrafnar KetilssonGA-0.121
Hjalti PálmasonGM-0.127
Arnór Tjörvi ÞórssonGR-0.154
Róbert Leó ArnórssonGKG0.116
Guðjón Frans HalldórssonGKG0.119
Bjarni Þór LúðvíkssonNK0.119
Jóhannes SturlusonGR0.119
Breki Gunnarsson ArndalGKG0.220
Páll Birkir ReynissonGR0.223
Bjarni Freyr ValgeirssonGR0.322
Skúli Gunnar ÁgústssonGA0.517
Tómas Hugi ÁsgeirssonGK0.519
Sveinn Andri SigurpálssonGS0.620
Kjartan Óskar GuðmundssonNK1.122
Róbert Smári JónssonGS1.321
Magnús Yngvi SigsteinssonGKG1.325
Bragi ArnarsonGR1.426
Rúnar Óli EinarssonGS1.439
Andri Már GuðmundssonGM1.620
Axel Óli SigurjónssonGO1.622
Arnór Daði RafnssonGM1.921
Ólafur Marel ÁrnasonNK2.021
Gunnar Þór HeimissonGKG2.115
Sturla HöskuldssonGFH2.148
Símon Leví HéðinssonGOS2.222
Ævar PéturssonGS2.227
Finnbogi SteingrímssonGM2.242
Máni Páll EiríkssonGOS2.322
Stefán Ragnar GuðjónssonGS2.322
Orri Snær JónssonNK2.346
Arnar Daði SvavarssonGKG2.414
Tristan Freyr TraustasonGL2.417
Ottó Axel BjartmarzGO2.519
Arnór Ingi HlíðdalGOS2.525
Aron Skúli IngasonGM2.526
Karl Ottó OlsenGR2.527
Andri ÁgústssonGM2.527
Stefán Þór HallgrímssonGM2.836
Óliver Máni SchevingGKG2.921
Kristinn Sölvi SigurgeirssonGOS3.525
Halldór Viðar GunnarssonGR3.618
Bjarki Þór DavíðssonGO3.732
Sindri Snær Skarphéðinsson3.830
Heiðar Steinn GíslasonNK3.917
Guðmundur Snær ElíassonGKG4.017
Gunnar GuðjónssonGO4.236
Hjalti Kristján HjaltasonGM4.413
Skúli Ágúst ArnarsonGO4.528
Sigurður Árni ÞórðarsonGO4.540
Magnús BjarnasonGEY4.617
Magnús Ingi HlynssonGKG4.649
Birkir Þór KristinssonGK4.717
Pálmi Freyr DavíðssonGKG4.817
Kristian Óskar SveinbjörnssonGM5.119
Jósef Ýmir JenssonGKG5.318
Benjamín Snær ValgarðssonGKG5.814
Þorsteinn Brimar ÞorsteinssonGR6.119

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ