/

Deildu:

Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á öðrumkeppnisdeginum á Áskorendamótinu sem fram fer í Kasakstan. Íslandsmeistarinn lék á 74 höggum eða +2 og er samtals á -1 þegar keppni  er hálfnuð. Birgir Leifur var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn og er hann því úr leik.  Hann heldur nú til Ítalíu þar sem hann keppir á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina.

Staðan:

screen-shot-2016-09-30-at-11-54-04-am

 

Birgir Leifur, sem er sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi, fékk boð um að leika á  sterkasta móti tímabilsins á Áskorendamótaröðinni. Mótið fer fram í Kasakstan á Zhailjau Golf Resort og er talsvert ferðalag framundan hjá atvinnukylfingnum úr GKG.

Mótið hefst fimmtudaginn 29. september og verða leiknir fjórir hringir. Verðlaunaféð á þessu mót er það hæsta á tímabilinu á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Birgir Leifur hefur leikið á sex mótum á Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili og besti árangur hans er sjötta sæti.
Það er mikill heiður fyrir Birgi Leif að fá boð um að taka þátt á þessu sterka móti en heildarverðlaunaféð er um 60 milljónir kr.

Birgir Leifur er skráður til leiks á 1. stig úrtökumótsins sem fram fer á Bogogno Golf Resort á Ítalíu dagana 4.-7. okt. Það gæti breyst ef hann nær góðum árangri í Kasakstan, en Birgir Leifur er í 96. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar en hér fyrir neðan má sjá árangur hans á tímabilinu.

screen-shot-2016-09-26-at-10-17-35-am

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ