Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir.
Auglýsing

Landsliðskylfingarnir Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir hefja leik í dag á svæðismótum (Regional) í bandaríska NCAA háskólagolfinu. Mótið fer fram dagana 6.-8. maí.

Alls er keppt á 6 keppnisstöðum og eru 12 lið á hverjum keppnisstað. Fimm efstu liðin á hverjum keppnisstað komast áfram í úrslitamótið þar sem að keppt er um háskólameistaratitilinn í liða – og einstaklingskeppni. Að auki geta einstaklingar tryggt sér keppnisrétt í úrslitum án þess að vera í liði sem leikur til úrslita – en alls fá 6 keppendur slíkan keppnisrétt í einstaklingskeppninni.

Hulda Clara keppir með Denver háskólaliðinu á East Lansing golfsvæðinu í Michigan á Forest Akers West vellinum.

Smelltu hér fyrir stöðu og úrslit:

Andrea keppir með Colarado háskólaliðinu á Spanish Trail golfsvæðinu í Las Vegas.

Smelltu hér fyrir stöðu og úrslit:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ