/

Deildu:

Auglýsing

Alexsandra Eir Grétarsdóttir var valin kylfingur ársins hjá Golfklúbbi Selfoss á nýafstöðnum aðalfundi klúbbsins, á heimasíðu klúbbsins segir;

Alexandra er frábær íþróttamaður sem er búin að ná frábærum árangri og miklum framförum á þessu ári enda gríðarlega duglega við æfingar.

Þess ber að geta að Alexandra er fyrst kvenna í GOS til að vera valin kylfingur ársins en Alexandra fékk einnig Háttvísibikar GSÍ!

Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir framfarir og ástundun.
Allir þessir kylfingar hafa verið duglegir að mæta á æfingar og náðu miklum framförum í sumar.
Eftirfarandi fengu viðkenningu:
Heiðrún Anna Hlynsdóttir
Þóranna Ýr Guðgeirsdóttir
Petra Grétarsdóttir
Sverrir Óli Bergsson
Heiðar Snær Bjarnason

Aron Emil Gunnarsson var valinn efnilegasti unglingurinn þetta árið en Aron er mjög efnilegur eins og margir aðrir í hans flokki.

Heiðrún Anna Hlynsdóttir fékk síðan viðurkenningu fyrir mesta lækkun á forgjöf hjá GOS 2014, en Heiðrún lækkaði úr 35,9 í 18,3 og geri aðrir betur.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ