GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Andrea Bergsdóttir var sú eina af fjórum íslenskum kylfingum sem komst í gegnum niðurskurðinn á Terre Blanche Ladies Open, sem lauk á Le Riou vellinum í Suður-Frakklandi á laugardag.

Mótið var það fimmtánda af nítján á LET Access mótaröðinni á þessu tímabili, en aðeins fjögur mót eru nú eftir.

Hér má sjá úrslit mótsins

Andrea byrjaði mótið vel og lék fyrsta hringinn á pari vallarins, 72 höggum. Hún lék annan hringinn á 76 höggum, fjórum yfir pari og náði í gegnum niðurskurð. Lokahringinn lék hún á 78 höggum og endaði í 52. sæti mótsins.

Hulda Clara Gestsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir luku báðar leik á sex höggum yfir pari og urðu jafnar í 62. sæti.

Hulda lék fyrsta hringinn á 77 höggum og annan hringinn á 73 höggum. Ragnhildur lék báða hringina á 75 höggum.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir var einnig á meðal keppenda, en hún lék fyrsta hringinn á 79 höggum, sjö yfir pari, og þann annan á 72 höggum. Hún lauk mótinu á sjö höggum yfir pari og varð jöfn í 68. sæti.

Fjögur mót eru eftir af tímabilinu, en efstu sjö kylfingar tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á LET mótaröðinni á næsta ári. Hulda Clara er í áttunda sæti listans sem stendur, en Ragnhildur og Andrea eru í sautjánda og átjánda sæti.

Næsta mót LET Access er Iberdrola Calatayud Ladies Open á Spáni dagana 14.-16. október.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ