GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri GKG, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Jón Júlíusson formaður stjórnar GKG við undirritun samstarfssamnings um uppbyggingu þjónustumiðstöðvarinnar.
Auglýsing

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) hefur undirritað samstarfssamning við Kópavogsbæ og Garðabæ um uppbyggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar fyrir klúbbinn. Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd sem áætlað er að kosti um 560 milljónir króna.

Samningurinn var undirritaður af Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra Garðabæjar, Agnari Má Jónssyni, framkvæmdastjóra GKG, og Jóni Júlíussyni, formanni stjórnar GKG.

Nýja þjónustumiðstöðin verður um 1.000 fermetrar að stærð og er gert ráð fyrir að hún rísi sunnan við bílastæði íþróttamiðstöðvar GKG. Byggingin mun hýsa tækjakost klúbbsins ásamt fullbúinni aðstöðu til viðhalds og þjónustu við vélar og tæki sem notuð eru við umhirðu golfvallanna.

Þjónustumiðstöðin mun hýsa tækjakost GKG auk verkstæðis til að þjónusta þau, olíudælum og skiljum, auk geymslna fyrir sand, áburð og fræ. Með framkvæmdinni verður skapað betra starfsumhverfi fyrir vallarstarfsfólk GKG og aðstaða til að sinna daglegum rekstri og viðhaldi golfvallanna bætt til muna.

Heildarkostnaður við byggingu þjónustumiðstöðvarinnar er áætlaður um 560 milljónir króna. Samkvæmt samstarfssamningnum munu Kópavogsbær og Garðabær greiða tvo þriðju hluta kostnaðarins.

Framlög sveitarfélaganna dreifast á fimm ára tímabil, frá 2027 til 2031.

GKG óskaði eftir aðkomu sveitarfélaganna að verkefninu haustið 2025 og voru áformin kynnt í bæjarráðum beggja sveitarfélaga síðastliðið vor. Með undirritun samningsins hefur nú verið stigið mikilvægt skref í átt að framkvæmdinni.

Við óskum GKG til hamingju með áfangann.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ